Verandi safn greina, sagna og hugleiðinga sem ælt hefur verið út um hvippinn og hvappinn.

Sunday, August 28, 2005

Rauðhetta og úlfynjan

Ritgerð úr námskeiðinu Kvikmyndalestur við Listaháskóla Íslands undir stjórn Úlfhildar Dagsdóttur.






Rauðhetta og úlfynjan

Um Rauðhettu og úlfana í kvikmyndunum The Company of Wolves (1984) og Freeway (1996)



Á baksíðu vísnabókar Roald Dahls, Revolting Rhymes, er fullyrt að þau ævintýri sem höfundurinn endursegir í bókinni innihaldi „some extremely surprising twists“. Eitt ævintýranna er sagan af Rauðhettu. Það sama má segja um flesta gagnrýnendur sem skrifað hafa um kvikmyndina Freeway (1996), sem einnig er endurgerð af Rauðhettusögunni. Myndinni er lýst sem „a bizarre take on the tale“[1], „truly warped version“[2], ,,new, surprising, and very adult“[3] og „an original, inventive twist on a too-familiar theme.“[4] Af þeim fjölda ritdóma sem ég skoðaði er aðeins einn gagnrýnandi sem gerir sér grein fyrir því að Freeway sækir fyrirmynd aðalpersónunnar í aldagamla sveitastúlku sem gat séð um sig sjálf og að Rauðhetta leikstjórans Matthew Bright er ekki eins nútímaleg og fólk virðist halda.[5]

Árið 1697 var sagan af Rauðhettu í fyrsta sinn gefin út á prenti. Það var rithöfundurinn Charles Perrault sem byggði ævintýri sitt á þekktum munnmælasögum um stúlku á leið til ömmu sinnar og úlfinn sem fylgir henni. Stærsta breyting Perraults frá munnmælasögunum var að hann lét úlfinn éta Rauðhettu og lýkur sögunni þar, en áður hafði hún alltaf sloppið heil á húfi. Auk þess bætti hann við rauðu hettunni sem stúlkan dregur nafn sitt af. Þessi útgáfa réði ríkjum í ævintýrabókum á átjándu öld eða þar til bræðurnir Jacob og Wilhelm Grimm tóku sig til og rituðu sína útgáfu árið 1812. Þessir höfundar breyttu upprunalegu sögunni mjög mikið og aðlöguðu hana að karlaveldi yfirstéttanna. Perrault tók sterka, hugrakka og sjálfstæða stúlkuímynd munnmælasagnanna og skapaði Rauðhettu – „pretty, spoiled, gullible and helpless. [...] The elaborate details added by Perrault to the oral tale all contribute to the portrait of a pretty, defenseless girl, who moreover may have been slightly vain because of her red hood.“[6] Í eftirmála Perraults við söguna útlistar hann boðskap sinn mjög nákvæmlega: góð börn skulu vara sig á ókunnugum. Grimmsbræður gengu enn lengra, bættu við aðvörun móðurinnar um að halda sig á veginum og veiðimanninum sem bjargar Rauðhettu úr maga úlfsins. Þannig kynntu þeir til sögunnar þau fyrirbæri sem hefur hvað mest verið ráðist á í endurskoðun sögunnar á tuttugustu öld – með því að fara af veginum er það Rauðhettu sjálfri að kenna að á hana er ráðist, kynhvöt kvenna er gerð glæpsamleg og eina björg Rauðhettu er að góður og sterkur karlmaður sé til staðar (þ.e.a.s. hún á heima í hjónabandinu). Í mjög grófum dráttum má segja að bókmenntaleg þróun ævintýrisins endurspegli þróun samfélags sem beinist að því að festa konur í ákveðnu hlutverki og leiðin í sögunni frá móðurinni til ömmunnar táknar ferð Rauðhettu í fjötra heimilislífsins.

Eftirlíkingar ævintýra Perraults og sérstaklega Grimmsbræðra eru fjölmargar, enda eru þetta útgáfurnar sem hafa lifað lengst á Vesturlöndum. En gegnum róttæka endurskoðun samfélagsins á tuttugustu öld, á sviðum stjórnmála, jafnréttis og hlutverka kynjanna, tóku að birtast nýjar útgáfur af ævintýrinu með breyttum áherslum. Í fyrrnefndri útgáfu Roald Dahls frá 1982 dregur Rauðhetta fram skammbyssu úr nærbuxunum sínum, eftir að úlfurinn hefur étið ömmuna og platað hana til sín. Hún skýtur úlfinn til bana og býr sér til forláta pels úr skinni hans. 43 árum fyrr hafði Rauðhetta James Thurbers í smásögunni „The Girl and the Wolf“ einnig skotið úlfinn til bana, í það skiptið með sjálfvirkri byssu sem hún faldi í körfunni sinni. Thurber hæðist að eftirmála Perraults og birtir sinn eigin boðskap: „It is not so easy to fool little girls nowadays as it used to be.“[7] Svo virðist sem þróun Rauðhettuævintýrisins sé að snúast til baka og færast frá hefðbundnu bókmenntaútgáfunni og nær gömlu munnmælasögunum. Freeway fellur vel inn í þessa þróun.

Upprunalegu munnmælasögurnar voru varúðarsögur fyrir börn til sveita, sem voru raunverulega í hættu vegna villidýra. En sögumönnunum var greinilega annt um börnin vegna þess að stúlkan er hvorki étin né drepin í þessum sögum og þrátt fyrir mjög fjölbreyttar útgáfur sem hafa fundist eiga þær það allar sameiginlegt að stúlkan snýr á úlfinn og bjargar þannig sjálfri sér. Munnmælasögurnar eru einnig táknrænar fyrir uppvöxt stúlkunnar, sem m.a. er göbbuð af úlfinum til að éta kjöt og drekka blóð ömmu sinnar og tekur þannig við af eldri kynslóðinni. Mannfræðingurinn Yvonne Verdier hefur rannsakað munnmælasögurnar ítarlega og ritar í frægri grein:

Án þess að gera lítið úr hlutverki úlfsins má segja að áhersla munnlegu sagnanna á hlutverki kvennanna – sem sýnir mikilvægi þeirra í gamla bændasamfélaginu – sé andstæða við sögu Perraults þar sem öll athyglin beinist að því hvernig úlfurinn flekar litlu stúlkuna. Hvað hefur gerst sem veldur því að síðarnefnda gerðin hefur orðið almenningseign frekar en hinar? Hvers vegna varð þessi saga, þegar hún var skráð í lok 17. aldar, allt í einu aðvörun til lítilla stúlkna („Stúlkur mínar, varið ykkur á úlfinum?“) og hefur sem slík varðveist og dreifst um löndin fram á okkar daga?[8]

Hvort sem litið er á munnmælasögurnar sem varúðarsögur eða þroskasögur er augljóst að þær upphefja ungu stúlkuna og lofa sjálfstraust hennar. Alveg eins og Freeway, sem leikstjórinn Matthew Bright hefur játað að sé „a celebration of girls.“[9]

Ein áhrifamesta endurgerð Rauðhettuævintýrisins er smásaga Angelu Carter frá 1979, „The Company of Wolves“, en eftir henni var gerð samnefnd kvikmynd árið 1984. Sagan fylgir munnmælasögunum með því að skapa táknræna þroskasögu stúlku sem er að vaxa úr grasi, verður kynþroska og loks að fullorðinni konu. En sagan sækir einnig í brunn Grimmsbræðra, segir frá veginum sem ekki má fara út af og lætur ömmuna hræða Rauðhettu í sífellu með sögum af slæmum úlfum sem vilja henni mein. Rauðhetta má engum treysta, því verstu úlfarnir eru loðnir að innan. En „The Company of Wolves“ snýr duglega upp á báðar útgáfurnar þegar kemur að endalokum Rauðhettu og úlfsins. Eftir að amman hefur verið étin áttar Rauðhetta sig á að hún er í greipum villidýrs og í bráðri hættu. „[...] and since fear did her no good, she ceased to be afraid.“[10] Stúlkan heldur ró sinni og þegar úlfurinn segir henni að hann ætli að éta hana getur hún ekki stillt sig um að hlæja því „she knew she was nobody's meat.“ Því næst leggst Rauðhetta með úlfinum, allt endar vel og í sögulok segir: „See! Sweet and sound she sleeps in granny's bed, between the paws of the tender wolf.“[11]

Kvikmyndin, sem Carter skrifaði sjálf ásamt leikstjóranum Neil Jordan, gengur enn lengra í lokaatriði sínu. Þegar (var)úlfurinn (í mannslíki) drepur ömmuna slær hann af henni höfuðið með kröftugu höggi. Höfuðið flýgur á vegginn og brotnar eins og postulín í þúsund mola (og við sjáum hversu brothættar hræðslusögurnar eru). Postulínsbrotin eru Grimmsævintýrin og allar eftirhermur þeirra sem úlfurinn vill eyðileggja. The Company of Wolves leggur nefnilega einnig áherslu á þroskasögu drengja, sem verða líkir úlfum í leit að bráð þegar þeir fá áhuga á hinu kyninu. Ein draumasena í kvikmyndinni „has a boy „attacked“ and consumed by the forest when he puts on a mysterious ointment (boy's entry into adulthood?).“[12] Þegar við lítum á lokaatriði myndarinnar sjáum við að úlfurinn er ekkert ánægðari með hlutverk sitt en Rauðhetta. Þegar hún spyr úlfinn hvort hann sé maður eða úlfur segist hann vera bæði. Hún spyr þá hvaða heimi hann tilheyri og hann segist reika á milli þeirra en eiga hvergi heima.

Þegar úlfurinn í mannslíki ræðst á Rauðhettu nær hún að skjóta hann í öxlina með riffli. Við það breytist hann í raunverulegan úlf en verður ekki mjög ógnandi. Rauðhetta hefur skotið í gegnum samfélagslegt yfirborð úlfsins. Hann situr rólegur og kveinkar sér. „I'm sorry. I never knew a wolf could cry“, segir Rauðhetta. Því næst segir hún úlfinum sögu af úlfynju sem kom upp úr sínum heimi til að heimsækja okkar en var umsvifalaust skotin. Hún vildi engum illt. Úlfynjan fékk hjálp frá presti sem fullyrti að sárið myndi gróa og hún flúði aftur niður í sinn heim. Sárið greri með tímanum en úlfynjan gleymir því aldrei sem hún fann í okkar heimi. Það er augljóst að okkar heimur hefur verið gegnsýrður af Grimmsævintýrum og það er ekkert pláss í honum fyrir góða úlfa. Líkt og í smásögunni leggst Rauðhetta með úlfinum því morguninn eftir koma foreldrar hennar heim og bregður við að sjá að dóttir þeirra hefur sjálf breyst í úlf. Hún flýr úr húsinu og slæst í för með úlfaflokki. Kvikmyndin er römmuð inn sem draumur – í upphafi sofnar stúlkan Rosaleen (Rauðhetta) og áhorfendur hverfa inn í ævintýraheim Angelu Carter. Í endann, þegar draum-Rosaleen er orðin að úlfi, hlaupa allir úlfarnir saman að heimili hennar og ráðast inn í svefnherbergið. Stúlkan vaknar öskrandi og myndinni lýkur. Hún hefur uppgötvað hlutverk sitt og það er ekki saklaust Grimmsævintýri.

„The Company of Wolves“ sýnir fram á að óttinn við kynhvötina er óþarfur. Það þjónar engum tilgangi að bæla niður náttúrulegt eðli. Sagan minnir fólk á að horfast í augu við lífið og loka ekki á heiminn – þó það séu til slæmir úlfar. Enn fremur beinir sagan kastljósinu að hlutverki kynjanna og veltir fyrir sér hvort drengir verði ekki fyrir jafnmiklum áhrifum af sögunni. Kvikmyndin dregur síðan grundvallarboðskap Carters skýrt fram þegar hún gerir Rauðhettu sjálfa að úlfi og segir áhorfendum að við erum öll úlfar, við erum öll dýrsleg, við erum öll jöfn. Eða eins og móðir Rosaleen orðar það þegar hún heyrir hvað dóttir sín tekur sögur ömmunnar alvarlega: „You pay too much attention to your granny. She knows a lot, but she doesn't know everything. And if there's a beast in men, it meets its match in women too.“ En hvaða leið fer kvikmyndin Freeway? Hún blandar einnig saman munnmælasögunum og þeim bókmenntalegu en býr til aðeins öðruvísi ævintýri en Carter. Í raun mætti líkja Rauðhettunni í Freeway við úlfynjuna sem kom upp úr sínum heimi og heimsótti okkar. Nema hvað Vanessa Lutz lætur engan komast upp með að ráðast á sig.

Vanessa (Reese Witherspoon) er að flýja að heiman eftir að foreldrar hennar hafa verið handteknir fyrir eiturlyfjaneyslu. Hún er á leið til ömmu sinnar þegar hún lendir í klóm nauðgarans og morðingjans Bob Wolvertons (Kiefer Sutherland). Hún verst honum með því að skjóta hann og flýr en Wolverton lifir árásina af og Vanessa fer fyrir rétt. Hún iðrast einskis, lætur hvergi bugast og viðheldur sjálfstæði og hugrekki í anda gömlu Rauðhettu í uppreisn sinni gegn samfélaginu. Að lokum flýr hún úr fangavistinni, kemst til ömmu sinnar þar sem hún mætir úlfinum og drepur hann.

Freeway tekur sterka kvenpersónu munnmælasagnanna, færir hana áfram í tíma um nokkrar aldir og kemur henni fyrir í því samfélagi sem Perrault, Grimmsbræður, og allar eftirhermur þeirra hafa hjálpað til við að skapa. Undir upphafstitlum myndarinnar má sjá ýktar teikningar í anda R. Crumb af varnarlausum konum að flýja undan subbulegum, slefandi úlfi. Konurnar eru í þröngum fötum, stuttum pilsum og oftar en ekki sést í nærbuxurnar þeirra. Þetta eru skopmyndir af kynferðislegum konum og ofbeldisfullum úlfi og vísar beint í þá hefð sem hefur myndast í kringum Rauðhettu. Í formála sínum að safnritinu The Trials and Tribulations of Little Red Riding Hood ritar fræðimaðurinn Jack Zipes:

Almost all the commodified forms of Little Red Riding Hood as sex object portray her as thorougly grown-up and desirous of some kind of sexual assignation with the wolf. At the same time, there are numerous illustrated books, records, and films for children that sanitize the sexual innuendos in an effort to cleanse the tale of its erotic components. Nevertheless, they always imply that, if Red Riding Hood herself had not strayed off the straight path to her grandmother's house, to domesticity, she would not have brought about the trouble she experiences. Whether sex or sanitized object, Red Riding Hood is compelled to assume responsibilty for the „predatory acts“ of her creators [...] [O]ne can dismiss the tale of Little Red Riding Hood as only a fairy tale that [...] has a good warning for girls when you consider how widespread rape is in our culture. However, the tale as it is used in most commodities and books today [...] still reinforces the notion that „women want to be raped.“[13]

Úlfurinn Bob Wolverton tekur Vanessu upp í jeppann sinn eftir að bíllinn hennar bilar á miðri hraðbraut og þau tala lengi saman áður en hann ræðst til atlögu. Í því samtali má finna vísbendingar um þær hugmyndir um að stúlkum sem láta frjálslega eða opinbera kynhvöt sína á einhvern hátt beri að refsa með ofbeldi og að fórnarlömb nauðgara í okkar samfélagi eru iðulega sögð hafa kallað árásina yfir sig með hegðun sinni.[14] Á meðan Wolverton þykist vera umhyggjusamur sálfræðingur og hlustar á Vanessu segja frá því hvernig stjúpfaðir hennar misnotaði hana kynferðislega fer hann inn á þetta mál og segir: „Vanessa, victims often blame themselves. It's a common occurrence. But make no mistake about it: You are the victim.“ En eftir að úlfseðlið kemur í ljós og Wolverton hefur misst stjórn á sér skiptir hann aldeilis um tón. Hann ræðst á hana og hún ver sig með látum. Því næst nær hann taki á henni og hótar að skera hana á háls. Hún biður hann að hætta og hann svarar: „I will stop it if you promise to behave.“ Því næst fer hann að ásaka Vanessu um kynferðislega hegðun og ögrun og tekur þannig undir þær raddir samfélagsins sem segja að frjálslegar konur biðji um að vera nauðgað þegar hann segir hana senda ómeðvituð skilaboð með kynferði sínu:

Wolverton: Look at you. You're already a master at the manipulation of men.

Vanessa: I didn't run nothin' on you!

Wolverton: It's so intrinsic to your fucking nature, you're not even aware of it when you do it. Stupid bitch.

Þetta er dregið enn skýrar fram þegar Vanessa hefur náð stjórn á úlfinum og ætlar með hann til lögreglunnar. Wolverton útskýrir fyrir henni að „people like me, we don't go to the gas chamber“ og sannfærir hana um að orð hans muni ávallt vega meira á móti orðum hennar og hún verði sjálf dregin til ábyrgðar. Þannig grefur Wolverton eigin gröf vegna þess að Vanessa trúir honum og Rauðhetta fyrri alda vaknar í henni, sér hvernig heimurinn er orðinn og tekur lögin í sínar hendur. Þau keyra á afvikinn stað þar sem hún skýtur úlfinn. Sjálfstæð, sterk og hugrökk Rauðhetta fortíðarinnar mun ekki að láta samfélagið ná sér á sitt vald. En er nokkur þroskasaga til staðar í myndinni?

Í bók sinni Working Girls bendir Yvonne Tasker á það í kafla um kvenhetjur í hasar- og spennumyndum að konur birtist oft í hlutverki strákastelpunnar („tomboy“), þ.e. sem klæðskiptingar (vöðvastæltar, í karlmannsfötum, karlgerðar). Annar flokkur sem hún bendir á er „the feisty heroine“, kvenhetja sem hagar sér eins og karlmaður en er ekki jafnaugljóslega karlgerð og strákastelpan. Hún er þó ávallt tengd karlkyninu á eitthvern hátt. Tasker skrifar um þær að „the associaton of feisty heroines with male/masculine qualities is marked by her very inscription as feisty: she „has balls“ as well as guts, she is „spunky“ and so forth.“[15] Tasker segir enn fremur að hetjur í ætt við „the feisty heroine“ séu ólíkar strákastelpunum á þann hátt að þær „don't ultimately grow up“ heldur tileinki sér frekar nokkurs konar „juvenile anarchy – taking pleasure in scars, guns and fighting.“[16] Vanessa passar engan veginn í fyrri flokkinn því hún er mjög „stelpuleg“ á að líta og alls ekki klæðskiptingur á þann hátt. Hún er nær því að vera „feisty“ því þrátt fyrir að virðast vera fullkomlega sjálfstæð þá er „karlmennska“ hennar m.a. tengd stjúpföðurnum sem kenndi henni t.d. að búa til hníf úr tannbursta. Leikstjórinn hefur sjálfur sagt að hann hafi reynt að ímynda sér hvernig karlar myndu bregðast við ef komið væri fram við þá líkt og oft er komið fram við konur. „I guess guys have got the testosterone, so that comes natural. If we were treated the way women are treated ... we'd kill somebody.“[17] Þannig ögrar Vanessa karlaveldi samfélagsins með því að brjótast úr hefðbundnu hlutverki sínu og ráðast gegn karlaveldi Grimmsbræðra með sömu brögðum og úlfarnir. Hún er úlfynjan komin upp úr sínum heimi.

Vanessa minnir á tvær þekktari úlfynjur sem gerðust útlagar með því að rísa upp gegn hefðbundnum hlutverkum sínum og ögra karlveldinu með því að gerast „karllegar“. Í grein um kvikmyndina Thelmu and Louise skrifar Ásta Gísladóttir bókmenntafræðingur:

Við komumst sennilega aldrei að niðurstöðu um það hvort Thelma og Louise hafi sigrað eða beðið lægri hlut í frelsisbaráttu sinni. Þó má greina lokaatriði myndarinnar jákvætt. Thelma og Louise hafa útgönguleið. Þær geta gefist upp og leikið fórnarlömb, en það er ekki möguleiki sem þær vilja íhuga. Þótt við vitum að þær hljóti að enda á botni gljúfursins er það myndin af þeim þar sem þær keyra í burtu frá lögregluflotanum sem situr í okkur.[18]

Það er margt líkt með frelsisbaráttu Vanessu Lutz og Thelmu og Louise, en það er einkum endirinn sem skiptir máli. Eftir að Vanessa hefur drepið úlfinn sest hún niður fyrir utan hjólhýsi ömmunar á meðan lögreglumennirnir fara inn að athuga hvað hafi gerst. Þegar þeir snúa aftur út til Vanessu lítur hún á þá og spyr hvort þeir eigi nokkuð sígarettu. Þeir geta ekki annað en brosað og Vanessa með – og ramminn er frystur á skælbrosandi andliti Vanessu, sem úr skín innileg gleði. Áhorfendur vita ekkert um hvað koma skal. Að öllum líkindum mun Vanessa lenda í fangelsi fyrir lífstíð eftir allt sem gengið hefur á í gegnum myndina. En það er myndin af henni brosandi sem situr í okkur líkt og myndin af Thelmu og Louise í bílnum. Hún brosir vegna þess að hún hefur sigrast á ógninni, útrýmt óttanum og sýnt heiminum hvernig alvöru Rauðhetta á að vera.


HEIMILDIR:

Ásta Gísladóttir, „„Konur elska svoleiðis bull.“ Thelma og Louise og uppreisnin gegn karllegu valdi.“ Heimur kvikmyndanna. Ristjóri: Guðni Elísson. Reykjavík, Forlagið, 1999, bls. 378-381.

Berardinelli, James, „Freeway. A Film Review.“ James Berardinelli's ReelViews. Vefslóð (skoðuð 13/11/03): http://movie-reviews.colossus.net/movies/f/freeway.html

Blockbuster Entertainment Guide to Movies and Videos 1999. New York, Island Books, 1998.

Braun, Liz, „Wickedly funny road to grandma's.“ Toronto Sun. Vefslóð (skoðuð 13/11/03): http://www.canoe.ca/JamMoviesReviewsF/freeway.html

Bright, Matthew. „Audio commentary.“ Freeway DVD edition. Republic Entertainment, 2000.

Chappé, Jeanne, „Freeway (1996).“ Films Outside the Loop. Vefslóð (skoðuð 13/11/03): http://www.sffa.com/fotl/fotl_archives/loop007.html

Company of Wolves, The. Leikstjóri: Neil Jordan. Palace Pictures, 1984.

Dahl, Roald, Revolting Rhymes. London, Puffin Books, 1984.

Freeway. Leikstjóri: Matthew Bright. Republic Pictures, 1996.

Renshaw, Jerry, „Freeway.“ The Austin Chronicle. Vefslóð (skoðuð 13/11/03): http://www.filmvault.com/filmvault/austin/f/freeway.html

Stell, John, Psychos! Sickos! Sequels! Horror films of the 1980s. Baltimore, Midnight Marquee Press, 1998.

Trials and Tribulations of Little Red Riding Hood, The. 2. útg. Jack Zipes ritstýrði. New York, Routledge, 1993.

Verdier, Yvonne. „Rauðhetta í munnlegri geymd. Amman sem gleymdist.“ Þýðandi: Guðrún Bjartmarsdóttir. Tímarit Máls og menningar 44. árg., 3. hefti 1983, bls. 284-305.

Tasker, Yvonne. Working Girls. Gender and sexuality in popular cinema. London, Routledge, 1998.



[1] Blockbuster Entertainment: Guide to Movies and Videos 1999, bls. 413.

[2] Chappé, Jeanne, „Freeway (1996).“

[3] Berardinelli, James, „Freeway. A Film Review.“

[4] Renshaw, Jerry, „Freeway.“

[5] Braun, Liz, „Wickedly funny road to grandma's.“

[6] Trials and Tribulations of Little Red Riding Hood, The, bls. 26.

[7] Trials and Tribulations of Little Red Riding Hood, The, bls. 229.

[8] Verdier, Yvonne. „Rauðhetta í munnlegri geymd.“, bls. 304.

[9] Bright, Matthew. „Audio commentary.“

[10] Trials and Tribulations of Little Red Riding Hood, The, bls. 290.

[11] Trials and Tribulations of Little Red Riding Hood, The, bls. 291.

[12] Stell, John, Psychos! Sickos! Sequels!, bls. 138.

[13] Trials and Tribulations of Little Red Riding Hood, The, bls. 9-11.

[14] Sbr. tilvísun Jack Zipes í grein Diane Herman, „The Rape Culture“: „If in one of these situations she is raped, the man will almost always escape prosecution and the woman will be made to feel responsible because she was somehow „asking for it.““ Trials and Tribulations of Little Red Riding Hood, The, bls. 13.

[15] Tasker, Yvonne. Working Girls, bls. 82-83.

[16] Tasker, Yvonne. Working Girls, bls. 84.

[17] Bright, Matthew. „Audio commentary.“

[18] Ásta Gísladóttir, „„Konur elska svoleiðis bull““, bls. 381.


Saturday, August 27, 2005

Siðferðislegt heilsufæði

Lífskjör grænmetisætunnar á höfuðborgarsvæðinu hafa skánað töluvert síðastliðin ár. Áður fyrr voru Náttúrulækningafélagið og Aðventistarnir eina athvarf hennar en eftir áralanga bið getur hún loksins gætt sér á flestum þeim náttúruafurðum sem hún hefur lesið um í matreiðslubókum hugsjónafólks á borð við Lindu McCartney. Sérhæfðar verslanir, matsölustaðir og kaffihús hafa skotið upp kollinum hér og þar innan um hefðbundnari samkomustaði alætunnar. Grænmetismenningin hefur einnig gert vart við sig í ýmsum matvöruverslunum þar sem finna má frosið sojakjöt í kælinum við hlið dýrsskrokka og afgirtar hillur eða horn þar sem grænmetisætan á sér athvarf og getur fundið lífrænt ræktaðar vörur, baunir, tófú og þvíumlíkt.

Þetta er allt gott og blessað. Vissulega fagna ég öllum framförum á þessu sviði og játa að ég lifi ágætu lífi sem grænmetisæta í höfuðborginni þrátt fyrir að það geti stundum verið dýrt að kaupa inn. Engu að síður er grænmetismenning Íslendinga enn sem komið er vanþróuð og brotakennd. Grænmetisætan lifir í sérhæfðum heimi sem er í engum tengslum við heildarmynd samfélagsins og mætir gjarnan skilningsleysi þegar út í umheiminn er komið. Matsölustaðir alætunnar bjóða ekki upp á úrval grænmetisrétta – þeir bjóða í langflestum tilvikum aðeins upp á einn slíkan rétt. Hann kallast nær undantekningalaust heilsuréttur. Þetta lýsir vel viðhorfi samfélagsins til grænmetisætunnar. Í augum samfélagsins er grænmetisætan einungis að hugsa um heilsuna þegar hún kaupir sér mat. Matsölustaðir koma til móts við þetta með því að bjóða upp á einn rétt af skyldurækni við heilsufríkin og láta þar með staðar numið. Hugmyndin um grænmetisætuna sem starfar af siðferðislegum ástæðum er einfaldlega ekki til staðar.

Sem dæmi um andstæðu við ástandið hérlendis er hægt að benda á Lundúnaborg (og í raun meirihluta Bretlands) þar sem grænmetisætan er jafnstór og sjálfsagður hluti samfélagsins og alætan. Flestir veitingastaðir bjóða upp á úrval grænmetisrétta og sumir gefa jafnvel upp þann valkost að breyta hvaða rétti matseðilsins sem er í grænmetisrétt. Allar vörur í matvöruverslunum eru vandlega merktar með V-i ef þær eru „hentugar fyrir grænmetisætur“. Þannig má lýsa muninum á grænmetismenningu Íslendinga og Breta með einföldu dæmi um samlokur. Í Lundúnum má finna margar tegundir af grænmetissamlokum en engin eggjasamloka telst „hentug“ fyrir grænmetisætuna nema að um „frjáls egg“ (vapphænuegg) sé að ræða. Þær örfáu grænmetissamlokur sem finna má hér á landi eru nær allar með eggjum og mér þykir afar ólíklegt að um frjáls egg sé að ræða – það er a.m.k. hvergi nefnt á umbúðunum – og þær heita oftar en ekki heilsubitar.

Þetta sérstaka hugarfar varðandi heilsurækt vekur áhuga minn þar sem allar grænmetisætur sem ég umgengst hafa snúist til betri vegar af siðferðislegum ástæðum. Til gamans má geta að eftir að ég söðlaði um og hætti að nærast á holdi hef ég bætt á mig kílóum sem aldrei fyrr. Það er því athygli vert að velta fyrir sér hvernig þessi áhersla á heilsufæði náði yfirhöndinni í grænmetisheiminum. Vissulega hefur siðferðislega grænmetisætan áhyggjur af heilsunni en hún sýnir heilsufari dýranna sem gefa af sér kjötið meiri áhuga en eigin vellíðan. Ég er ekki vanur að auglýsa eða predika mínar matarvenjur þegar ég stíg fæti út í samfélagið en ég tel mig knúinn til að leiðrétta þær ranghugmyndir sem ráða ríkjum um grænmetisætuna á höfuðborgarsvæðinu sem neitar sér um þær holdlegu lystir án þess að gera það endilega af heilsufarsástæðum.