Verandi safn greina, sagna og hugleiðinga sem ælt hefur verið út um hvippinn og hvappinn.

Saturday, May 17, 2008

Magískur Maysles

Um síðustu helgi sat ég í Skjaldborgarbíói á opnunarkvöldi hátíðar íslenskra heimildamynda á Patreksfirði og hlustaði á einn þekktasta og virtasta leikstjóra bransans ræða sinn feril og sínar myndir og svara spurningum á sviðinu. Albert Maysles heitir hann, sérlegur heiðursgestur hátíðarinnar, en sýnd voru valin verk frá rúmlega hálfrar aldar ferli, þ. á m. víðfræg mynd sem hann gerði um Rolling Stones og Altamont árið 1970. Albert hafði frá ýmsu að segja, eins og við er að búast af manni sem hefur unnið með ótal viðfangsefnum í sínum myndum, m.a. Bítlunum, Marlon Brando, Truman Capote og Orson Welles, svo eitthvað sé nefnt.

Dagskrá Skjaldborgarhátíðarinnar í ár samanstóð af um 30 íslenskum heimildamyndum og stór hluti þeirra leikstjóra voru viðstaddir yfir helgina. Ég get því gróflega ályktað að fjölmargir heimildamyndagerðarmenn, nýgræðingar jafnt sem lengra komnir, hafi setið og hlustað á Maysles ræða málin. Þeim hlýtur því öllum að hafa brugðið þegar hann lýsti því yfir að hann væri í stökustu vandræðum að koma draumamyndinni sinni í verk vegna þess að hann skorti fjármagn. Það var ákveðið raunveruleikasjokk að heyra rúmlega áttræðan manninn, sem er jafnframt einn frægasti leikstjóri á sínu sviði, játa þetta. Eftir allt sem hann hefur gert, þá þarf hann ennþá að ströggla til að gera myndir. Og ef Albert Maysles þarf enn að berjast fyrir sinni list, þá þýðir lítið fyrir okkur hin að kvarta. Þá veltir maður kannski fyrir sér hvort hann sé ekki lengur að gera nægilega spennandi myndir og lifi á fornri frægð, en svo er vissulega ekki.

Myndin sem hann dreymir um að klára og hefur verið að reyna að koma í vinnslu í meira en áratug fjallar um lestarferðir. Maysles vill fara í lestir víða um heim og grípa mannlegar sögur frá farþegum til að sýna hversu nátengd við erum hvoru öðru, landamæralaust. Þetta gæti hljómað eins og skrítið umfjöllunarefni, en sá dularfulli kraftur fylgir Maysles að hann þefar uppi mannlegt drama hvert sem hann fer. Þegar hann gerði prufu fyrir myndina fór hann í lest í Bandaríkjunum og sá konu sem virtist vera eitthvað stressuð. Hann kynnti sig, spurði út í ferðalagið og bað um að fá að fylgja henni eftir með vélina. Í ljós kom að konan var á leið að hitta móður sína í fyrsta sinn, en hún hafið verið tekin frá henni sem ungbarn. Albert fylgdi alla leið á stöðina og náði endurfundunum á filmu. Í öðru tilviki var hann að ferðast í Rússlandi og bankaði upp á í lestarvagni þar sem honum virtist fjölskylda vera saman komin – móðir, faðir og tvö börn. Um leið og hann gekk þar inn rétti annað barnið honum ljósmynd. Svo kom í ljós að þetta voru ekki foreldrar þeirra, heldur frændfólk sem var að sækja börnin vegna þess að faðir þeirra var nýbúinn að myrða móður þeirra. Ljósmyndin var af börnunum við líkkistuna.

Þá er ekki annað hægt en að spyrja sig hvernig Albert fari að því að næla alltaf í svona áhugavert efni. Er hann bara heppinn, eða býr hann yfir sjötta skilningarviti heimildamyndagerðarsnillingsins? Þetta er vafalaust góð blanda af báðu. Það fer a.m.k. ekki framhjá neinum sem sér myndirnar hans að Albert kann að lesa mannfólk. Ég gæti ekki hugsað mér betri mann til að halda af stað í lestarferð um heiminn og finna allt það áhugaverða fólk sem leynist í hverjum króki og kima. Þá er bara að vona að einhver sjái sér fært að veita honum fjármagn til að klára þau verk sem hann vill gera, því við ættum að fagna því að hann sé ennþá á fullu að vinna myndir og hlakka til þess sem koma skal, því hann á greinilega nóg eftir.


Saturday, April 26, 2008

Kvikmyndir eru líka tónlist

Það var vissulega hressandi upplifun að sitja í stóra salnum í Háskólabíói, umkringdur börnum og fjölskyldum, á kvikmyndatónleikum Sinfóníunnar síðustu helgi. Reynslan tók á sig súrrealíska mynd þegar barnapersónan Barbara og músin Maxímús Músíkus tóku til við að kynna verkin. Barbara útskýrði með látum og látbragði hvað kvikmyndatónlist væri – nokkuð sem börnin eru alltaf að hlusta á án þess að vita af því – og ég fór í fyrsta sinn að ímynda mér krakka sem hafa kannski aldrei tengt tónlistina við lifandi hljómsveit áður. Þegar tónleikarnir hófust með krafti á forleik John Williams að fyrstu Stjörnustríðs-myndinni hafa örugglega mörg ný ljós kviknað í haus og eyrum yngstu áheyrandanna. Slík verk eru í mörgum tilvikum fyrstu upplifanir ungra krakka á sinfónískri músík og beintenging við heim klassískrar tónlistar sem ekki má vanmeta. Kvikmyndatónlist í barna- og fjölskyldumyndum er oftar en ekki undir rammklassískum áhrifum – John Williams er langbesta dæmið um það, enda hefur hann ekki farið í felur með vísanir í hin og þessi þungaverk tónlistarsögunnar (í Stjörnustríði má auðveldlega finna Holst og Stravinsky, svo eitthvað sé nefnt).

Ég ólst upp innan um mikið af klassískri tónlist, en ég get með sanni sagt að ég hafi fyrst byrjað að hlusta á hana af alvöru í gegnum kvikmyndir. Fyrsti geisladiskurinn sem ég eignaðist var Karnival dýranna eftir Saint-Saëns, sem kemst afar nálægt því að vera kvikmyndatónlist, enda var tónskáldið einn af þeim allra fyrstu að frumsemja tónlist fyrir kvikmyndir snemma á 20. öld. Aðrar gamlar minningar eru úr Fantasíu (1940), sem ég horfði mikið á sem krakki. Þegar ég fékk að fara á Sinfóníutónleika var það toppurinn að heyra Moussorgsky þruma yfir djöflunum á fjallinu eða Mikka mús að berjast við strákústaherinn. Svo kom John Williams og öll lykilverkin hans, sem höfðu gríðarmikil áhrif á mig á sínum tíma, þrátt fyrir að ég sé að miklu leyti vaxinn upp úr honum núna. Ekki má heldur gleyma kvikmyndaflóru Stanley Kubrick, sem notaði klassíska músík óspart og hafnaði jafnvel frumsaminni tónlist á síðustu stundu og setti gömlu meistarana á hljóðtrakkið í staðinn (fræg er sagan af aumingja Alex North sem mætti á frumsýningu 2001 (1968) án þess að vita að tónlistin hans hafði verið tekin burt). Ég uppgötvaði helling af músík í gegnum Kubrick og nú varð aðalmálið að heyra Béla Bartók eða Penderecki flutta á sviði. Þá fóru líka ýmsar tengingar að gera vart við sig og ég tók að bera kennsl á línurnar sem liggja á milli klassískrar tónlistar (og nútímaklassík) og kvikmyndaheimsins. Enn kviknaði á nýjum perum, til dæmis þegar ég áttaði mig á því að gömul æskuminning úr Aliens (1986) – titilstefið sjálft eftir James Horner – var tekin beint úr Gayane-balletnum eftir Khatchaturian!

Vegir kvikmyndatónlistar og nútímatónlistar hafa af og til legið saman. Kubrick var brautryðjandi í að nota nútímaverk (t.a.m. Penderecki í The Shining (1980)), en kvikmyndatónskáld á borð við Jerry Goldsmith (Planet of the Apes (1968) og Alien (1979)) og John Corigliano (Altered States (1980)) ættu að eiga greiða leið inn í nútímatónleikaprógramm. Það er því gleðiefni að kvikmyndatónlist sé loksins farin að óma í tónleikasölum hér á landi. Síðustu ár hefur verið mikil uppsveifla, bæði í lifandi flutningi undir þöglum myndum en einnig í heilsteyptum kvikmyndatónleikum sem snúast aðeins um tónlistina. Enn er af nógu að taka úr heimi kvikmyndanna og það verður spennandi að fylgjast með því hvaða tónlist verður hleypt næst inn í kanónuna.

Saturday, April 5, 2008

Gamla góða últraofbeldið

Í ágætri bók frá 1974 um ofbeldi í listum fjallar höfundurinn John Fraser um óræðni í ofur-ofbeldisfullum kvikmyndum, eða svokölluðum níðingamyndum. Þegar bókin var skrifuð höfðu tvær nýlegar kvikmyndir vakið töluverða athygli og Fraser ber saman framsetningu ofbeldis í báðum verkum. Önnur myndin vakti mikið umtal vegna hrottaskapar, en hin ekki, þrátt fyrir að sú síðarnefnda innihaldi mun meira beint og sýnilegt ofbeldi. Sú er The Godfather (1972), með fjölda blóðugra og ruddalegra mafíumorða, en til samanburðar er aðeins eitt morð í þeirri fyrrnefndu, næstum ekkert blóð sýnilegt og flestir ofbeldisverknaðirnir framdir utan sjóndeildarhrings áhorfandans. Sú er A Clockwork Orange (1971). Út frá þessum samanburði veltir Fraser því lengi fyrir sér hvers vegna mynd Kubricks hafi vakið jafnsterk viðbrögð og raun ber vitni, en hin ekki. Til að gera langa sögu stutta telur hann það vera vegna óræðninnar sem ríkir í framsetningu bæði á illmennunum og sjálfu ofbeldinu.
Ég fór að rifja upp þennan kafla eftir að ég leigði mér Saw III (2006) um daginn. Fyrir þá sem ekki þekkja til myndaflokksins segir hann frá raðmorðingja sem kemur fórnarlömbum sínum fyrir í aðstæðum þar sem þau þurfa að framkvæma einhvern hrylling, ellegar týna lífinu. Í raun og veru eru myndirnar lítið annað en röð af dauðasenum sem snúast allar um frumlegar pyntinga- og aftökuaðferðir, hver annarri subbulegri. Slíkar pyntingamyndir má rekja til sömu ára og Fraser sat við sínar skriftir, eftir að höft kvikmyndaeftirlitsins höfðu minnkað tilfinnanlega vestra og leikstjórar tóku að gera tilraunir með alls kyns ofbeldi. Blóðið skvettist fljótt yfir skjáinn í myndum sem nutu meginstraumshylli, á borð við Bonnie and Clyde (1967) og The Wild Bunch (1969), með ofbeldi sem var auðskilgreinanlegt og hluti af myndformi sem var kunnugt áhorfendum (s.s. mafíumyndir og vestrar). Órætt ofbeldi af þeim toga sem finna má í A Clockwork Orange komst sjaldan í mikla dreifingu án þess að hafa stór nöfn á bak við sig (á borð við Kubrick sjálfan eða Sam Peckinpah með Straw Dogs (1971)) heldur lenti miklu frekar í b-mynda prógrömmunum. Alræmdar níðingamyndir á borð við Last House on the Left (1972) eða I Spit On Your Grave (1978) (sem innihalda langar, erfiðar og niðurlægjandi ofbeldissenur) vöktu umtal meðal hryllingsunnenda, en náðu aldrei að fanga athygli umheimsins fyrr en með tilkomu myndbandstækninnar.

Í upphafi níunda áratugarins var fjöldi ofbeldismynda kominn á myndbandamarkaðinn og því orðinn aðgengilegri en áður þekktist. Þetta voru hryllingsmyndir af ólíkum toga – bæði níðingamyndir sem lögðu áherslu á tilfinningalega flókið ofbeldi og hreinræktaðar subbumyndir sem gerðu ekkert annað en að bjóða upp á heilalaust ofbeldi af verstu gerð. Þessar myndir voru kallaðar „video nasties“ og komu af stað slíku hneyksli að ritskoðunarskærin fóru á fullt, margar myndir voru einfaldlega bannaðar, og flestar hafa þurft aldarfjórðung til að jafna sig og komast aftur í samt lag. Það hlýtur því að teljast merkilegt hversu mikið landslagið hefur breyst á tímum þegar groddaverkum Saw-seríunnar er flaggað í öllum bíóum, stúdíóin keppast við að senda frá sér markaðsvænar subbumyndir og nútímaníðingamyndir líkt og Irréversible (2002) eiga greiða leið í A-salinn. Þetta er allt gott og blessað, enda brýn nauðsyn að horfast í augu við og ræða ofbeldi í öllum birtingarmyndum opinskátt í samfélaginu, en þegar öllum subbuskapnum hefur verið skúbbað fram í dagsljósið, hvað getur jaðarmenningin þá gert af sér næst?

Saturday, March 29, 2008

S fyrir skyggnubíó

Árið 1961 frumsýndi BBC sjö þátta sjónvarpsseríu. Sögusviðið var náin framtíð og efnið vísindafantasía af bestu gerð. Þáttaröðin fékk gæðastimpil strax í upphafi vegna þátttöku stjörnu- og heimsfræðingsins Fred Hoyle, sem skrifaði handritið og bætti þar með auknu raunsæi við mixtúruna. Verkið hét A for Andromeda og er nú á dögum talin einn hornsteina vísindaskáldskaps í sjónvarpi á sjöunda áratugnum og ein af merkilegri þáttaröðum sem BBC hefur varpað. Það er því ótrúlegt að aðeins einn þáttur af sjö hefur varðveist – og enn ótrúlegra að þrátt fyrir það hefur öll serían verið gefin út á DVD.

Söguþráðurinn lokkaði mig til sín um leið, enda hef ég veikan blett fyrir gömlu sæ-fæ. A for Andromeda hefst árið 1970 og segir frá hópi vísindamanna sem taka við skilaboðum frá geimnum. Þau innihalda leiðbeiningar til að byggja og forrita tölvu. Fyrr en varir er vélin farin að hugsa sjálfstætt og tekin að sýna umhverfi sínu mikinn áhuga. Hún kennir hópnum að skapa frumstæða lífveru og þegar enginn sér til myrðir hún vísindakonu að nafni Christine (Julie Christie í fyrsta stórhlutverki sínu). Því næst gefur tölvan leiðbeiningar að því hvernig á að skapa mennskt fóstur og á mettíma vex fullkomin eftirmynd Christine úr grasi. Þessi dularfulla geimkona er skírð Andromeda og enginn veit hvert ætlunarverk hennar er á Jörðinni.

Ég byrjaði að horfa á þættina fyrr í vikunni og dáleiddist strax – ekki endilega vegna þess hversu spennandi sagan reyndist, heldur vegna formsins sem serían hefur varðveist í. Á ýmsa vegu minnir það frekar á nútímavídeólist eða gamlar avant-garde kvikmyndir á borð við La Jetée (1962), þar sem stillimyndir eru settar saman, líkt og skyggnusýning, ásamt hljóðrás, til að skapa myndaflæði án hreyfingar. A for Andromeda hefur nefnilega varðveist að mestu í stillum. Hljóðrásin er ekki einu sinni til lengur, nema í brotum. Meirihluti seríunnar er því skyggnusýning með undirtexta sem lýsir því sem á sér stað hverju sinni og abstrakt geimtónlist sem spilast yfir. Það tók nokkurn tíma að venjast þessu, en á einhvern dularfullan hátt dró þetta mig enn sterkar inn í atburðarásina – kannski vegna þess að stillurnar minna á ljósmyndir og serían líkist þannig frekar sagnfræðilegri heimild um liðinn atburð en sjónvarpsfantasíu. Hver rammi helst lengi á skjánum, honum er troðið upp á mann og ekki annað hægt en að sökkva ofan í senuna. Af og til er síðan formið brotið upp með þeim örfáu myndskeiðum sem hafa varðveist.

Á fyrstu áratugum sjónvarpsútsendinga í Bretlandi var þáttaröðum að miklu leyti hent í ruslið – efninu var eytt út af spólunum til endurvinnslu og sparnaðar án nokkurs skilnings á framtíðarvarðveislu eða menningargildi. Fjöldi sjónvarpsþátta hlaut þessi örlög (yfir hundrað Dr. Who þættir!) en sem betur fer var til maður sem hét John Cura sem tók sérstakar myndir af útsendingunum – svokallaðar „tele-snaps“ – og seldi til minja um verkin, aðallega fyrir aðstandendur sem vildu eiga sýnishorn af vinnu sinni (fyrir tíma myndbandstækninnar). Á síðari árum hafa ýmsir aðdáendur staðið fyrir því að gömlu efni hefur verið púslað aftur saman úr þessum tele-snaps myndum, ásamt hljóðrás og/eða texta, til að endurskapa týnda fjársjóði og gefa nýjum áhorfendahópi tækifæri til að upplifa þá. Á bloggsíðum má finna fýluköst margra þeirra sem munu aldrei fyrirgefa BBC fyrir ódæðisverkin, en því verður ekki neitað að án þess að ætla sér það tókst nískupúkum BBC og ljósmyndaranum Cura að skapa afar sérstakt kvikmyndaform sem verður seint leikið eftir.

Saturday, February 23, 2008

Vampíra látin!

Þessi fyrirsögn kemur kannski mánuði of seint, en betra er seint en aldrei, sérstaklega ef um ræðir lifandi dauðar goðsagnir á borð við Mailu Nurmi (1921-2008). Það kemur kannski ekki á óvart að Nurmi hafi ekki fengið mikið pláss í fjölmiðlum eftir 10. janúar síðastliðinn, enda var hún ekki ungt nýstirni sem dó fyrir aldur fram, heldur gömul glóandi stjarna sem lést af náttúrulegum orsökum 86 ára að aldri. Blöðin fengu líka nóg að gera þegar Brad Renfro dó nokkrum dögum síðar og Heath Ledger viku eftir það. En það er ekki á hverjum degi sem vampírur deyja og ég vil nýta tækifærið til að minnast hinnar einu sönnu Vampiru (borið fram Vam-pæ-ra) með fáeinum orðum.

Flestir þekkja týpuna án þess að kannast við hana sjálfa. Nurmi gerðist fyrsti „hryllingskynnirinn“ (e. horror host) í bandarísku sjónvarpi þegar hún skapaði persónuna Vampiru og fékk vinnu við að kynna b-mynda ruslið á síðkvöldum hjá lítilli sjónvarpsstöð í Los Angeles árið 1954. Þátturinn hét einfaldlega The Vampira Show og var tilraun dagskrárstjóra til að lokka áhorfendur að skjánum að fylgjast með efni sem var ekki beinlínis efst á vinsældalistum. Persóna Vampiru var svartklædd, kynþokkafull og glæsileg, eins og klippt út úr gotneskum hryllingsbókmenntum, en jafnframt full af húmor fyrir sjálfri sér og þeim myndum sem hún var að kynna. Hún sagði sjálfsmeðvitaða brandara og hélt uppi gleðilega hallærislegu gríni ásamt aðstoðarköngulónni sinni, Rollo. Sviðsmyndin var gamall sófi skreyttur hauskúpum og beinum og titillag þáttarins var tekið úr verki Béla Bartók, Tónlist fyrir strengi, slagverk og celestu. Nurmi byggði persónuna á gömlum drottningum þöglu myndanna á borð við Thedu Böru og Gloriu Swanson, auk vondu stjúpunnar í Mjallhvíti Walt Disney og frægra teiknimynda Charles Addams úr New Yorker.

Vampira var prótótýpa goth-menningar nútímans. Hún var sannkölluð hryllingsdrottning sem sameinaði kynlíf, dauða og glens í einum og sama karakternum, og því er ekki að undra að hún hafi slegið rækilega í gegn á sínum tíma. Eftir að fréttir af sjónvarpskynninum tóku að berast ríkjanna á milli varð Vampira fræg á landsvísu og öll helstu kvikmyndaverin sýndu áhuga á að vinna með henni. Aðdáendaklúbbar spruttu upp eins og gorkúlur og fyrr en varði voru hryllingskynnar á hverju strái. Það er því mesta furða að Nurmi hafi ekki nýtt sér tækifærin sem virtust bókstaflega fleygja sér að fótum hennar. Hún lék í örfáum kvikmyndum á næstu árum og allt voru það lélegar b-myndir í anda The Vampira Show. Þar ber helst að nefna hlutverk á móti Bela Lugosi í stórvirki Ed Wood, Plan 9 From Outer Space (1959). Því miður verður Vampiru ávallt minnst vegna þeirrar myndar, því þar má finna einu samtímaupptökurnar af Nurmi í gervinu, þar sem hún leikur hlutverkið þögult og fimmaurabrandararnir eru fjarri góðu gamni. Engar upptökur eru til úr The Vampira Show, en hlutverkið var síðar meir gætt lífi og rödd af Lisu Marie í ævisögulegri mynd Tim Burton um Ed Wood.

Eftir þetta missti umheimurinn áhugann á Vampiru. Nurmi hvarf úr sviðsljósinu næstu áratugi en stakk fram höfðinu endrum og nær til að birtast í einstaka b-mynd eða heimildamynd. Á níunda áratugnum lögsótti hún hina barmmiklu vampíru Elviru (borið fram El-væ-ra) og vildi skaðabætur, þar sem hún taldi leikkonuna Cassöndru Peterson hafa stolið persónu sinni. Nurmi tapaði málinu og hvarf aftur í skuggana, en Vampira lifir enn góðu lífi hjá áhugafólki b-mynda og mun ávallt eiga sinn sess í hryllingsgoðsögunum.

Saturday, February 2, 2008

Töfrar kvikmyndanna

Því er gjarnan haldið fram að kvikmyndaformið sé náskylt draumum. Passívur áhorfandi sem situr kyrr í myrkum sal er mataður með myndaröð af óséðum aðila sem vinnur á bak við tjöldin. Það sama má segja um sofandi mann sem er mataður með dularfullu myndefni af undirmeðvitundinni. Kvikmyndatæknin getur haft djúpstæð áhrif bæði á meðvitund og upplifun áhorfanda. Bestu dæmin eru líklega faldar auglýsingar í kvikmyndum, vel heppnaðar áróðursmyndir og verk ýmissa súrrealista (að ótöldum kenningum um heilaþvott og hugsanastýringu). Hugmyndir um að hægt sé að framleiða kvikmynd sem geti tryllt áhorfendur og bókstaflega haft áhrif á hegðun þeirra er vissulega heillandi. John Carpenter hefur t.a.m. leikið sér með þessar pælingar í tveimur verkum. Í In The Mouth of Madness (1995) rústa bækur vinsæls hryllingshöfundar geðheilsu lesenda og þegar kvikmyndaaðlögunin kemur loksins út missir fólk vitið í milljónatali (enda á myndaformið greiðari leið að huga almennings). Í stuttmyndinni Cigarette Burns (2005) fer maður í leit að kvikmynd eftir bandbrjálaðan sérvitring sem er fræg fyrir að hafa gert áhorfendur snaróða í eina skiptið sem hún var sýnd almenningi. Eftir stranga og erfiða leit kemst söguhetjan að því að leikstjóranum hafði tekist að redda sér lifandi engli, sem hann misþyrmdi og vængstýfði fyrir framan tökuvélarnar. Englablóð á filmu er víst nóg til að gera hvern sem er að morðóðum fanti.

Hugmyndir af þessu tagi eiga meira skylt við galdra heldur en kvikmyndagerð (sumir vilja þó meina að þetta tvennt sé náskylt, eins og kvikmyndir og draumar). Það er mikil hefð fyrir dulspeki í kvikmyndum og margir virkir galdramenn hafa unnið sem leikstjórar. Frægastur er líklega Kenneth Anger, sem var sjálfur lærisveinn frægasta galdramanns 20. aldar, Aleister Crowley. Anger framreiddi verk sem hann lýsti sjálfur sem galdravopnum til að hafa áhrif á umheiminn. Hann notaði blöndu af magískri táknfræði, dulspeki, fornum trúarathöfnum og vísunum í samtímapoppkúltur til að kalla fram álög á filmu í myndum á borð við Lucifer Rising (1972) og Inauguration of the Pleasure Dome (1954). Anger vildi leggja galdur á áhorfendann sem yrði endurvakinn með endurteknu áhorfi og gæti þannig lifað um ókomin ár. Myndmálið var til þess ætlað að hafa áhrif á ólík stig (undir)meðvitundar í áhorfandanum.

Þrátt fyrir að til séu kvikmyndagerðarmenn sem líti á sig sem hreinræktaða galdramenn og vinni meðvitað með formið sem slíkt þá birtist dulspeki-þátturinn oftar í formi tóls sem er notað til að draga fórnarlömbin inn í filmuna í gegnum táknfræði, ritúala og óhefðbundnar frásagnaraðferðir. Fjöldi leikstjóra hefur stuðst við dulspeki á einn eða annan hátt í gegnum áratugina. Alejandro Jodorowsky er þekktur kuklari (hann eyddi m.a. rúmum 15 árum í að rannsaka og endurvinna upprunalega Tarotið frá Marseille) og áhrifanna gætir greinilega í verkum hans (The Holy Mountain (1973) er líklega besta dæmið). Það sama má segja um fræga stuttmynd Mayu Deren, Meshes of the Afternoon (1943). Werner Herzog gerði róttækar tilraunir með dáleiðslu við gerð myndarinnar Heart of Glass (1976). Og David Lynch, eins og frægt er orðið, styðst við hugleiðslu í listsköpun sinni til að hafa áhrif á og eiga í samskiptum við áhorfendur á djúpstæðu plani undirmeðvitundar – maður verður að kafa djúpt til að finna stóra fiska, eins og Lynch orðar það sjálfur. Það fer ekki á milli mála að magían hefur fyrir löngu hreiðrað um sig í heimi kvikmyndanna og myndar þar kafla sem enn á eftir að rannsaka til hlítar.

Thursday, January 3, 2008

Bókstafleg fræðimennska

Þegar ég var á fyrsta ári í bókmenntafræði við Háskóla Íslands komst ég í kynni við ýmis fræðileg hugtök sem heilluðu misjafnlega. Það var erfitt að fá ekki aulahroll yfir oftúlkunum sem leyndust víða í námsefninu og þá jafnaðist ekkert á við sálgreiningarkenningar þar sem hvert einasta smáatriði snerist um kynlíf og kynhlutverk. Freud stakk upp kollinum hér og þar og sagði mér að allt lárétt væri kvenlegt, allt lóðrétt væri reðurtákn og að geldingaróttinn og tippaöfundin væru ráðandi kraftar að baki allri mannlegri tilvist. Þetta var stór biti á sínum tíma en eftir því sem ég hélt sífellt lengra inn í heim hryllingsfræðanna varð auðveldara að kljást við flækjurnar. Ég hætti að taka Freud bókstaflega og skildi að sálgreiningarhugtökin eru orðræðutól í fræðunum, en ekki leit að heilögum sannleik. Hryllingsmyndir eru sannkallaður leikvöllur fyrir sálgreinendur, enda snúast þær fyrst og fremst um ofbeldi og kynlíf og því ekki að furða að Freud og félagar hafi stýrt umræðunni þar um áratugabil.

Ég er að rifja upp bókmenntafræðina vegna hugtaks sem ég var búinn að steingleyma en var að knýja dyra hjá mér á ný. Það er iðulega tengt Freud og geldingaróttanum, en virðist eiga sér þó nokkra baksögu í þjóðsögum hinna og þessa menningarkima í heiminum. Ég man að ég glósaði hugtakið í bókina mína (ég var annars gríðarlatur að glósa) einfaldlega vegna þess að ég trúði ekki að kennarinn væri farinn að rausa um tenntar píkur fyrir framan bekkinn – í hvaða nám var ég eiginlega búinn að koma mér? Vagina dentata er latneska heitið og líffærið er einfaldlega eins og það hljómar. Mér skilst að ákveðnir hópar indíána í N-Ameríku hafi m.a. átt goðsögur um hættulegar konur sem gátu steingelt karlmanninn við kynmök með einum „munnbita“. Það gefur auga leið að bókmenntafræðingar og sálgreinendur tóku myndlíkingunni opnum örmum og vagina dentata er þar hluti af almennu námskeiði um hugtök og heiti.

Ímyndin um tennta píku teygði vissulega á ímyndunaraflinu, en annars man ég ekki eftir að hafa heyrt af henni aftur í háskólanáminu. Fyrir nokkru sá ég hins vegar stiklu fyrir hryllingsmyndina Teeth (2007) sem vakti athygli á Sundance hátíðinni í fyrra. „Engin rós er án þyrna“ segir auglýsingalínan á veggspjaldinu, en myndin segir frá ungri konu sem uppgötvar að hún býr yfir hræðilegu leyndarmáli þegar hún sefur hjá í fyrsta sinn. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það að hún er með hárbeittar tennur neðan mittis, sem býður upp á mikla sjónræna gleði í hryllingsmynd. Bókmenntafræðingurinn innra með mér skríkti af kátínu og ég bíð spenntur eftir að berja herlegheitin augum. Það er alltaf áhugavert þegar slík hugtök eru tekin bókstaflega og Teeth sver sig í ágæta hefð kvikmynda sem leika sér að fræðunum og fíflast aðeins í akademíunni. Ætli myndin endi ekki í námsskrá HÍ áður en langt um líður.

Vagina dentata hefur þó látið sjá sig í kvikmyndum áður. Í japönsku teiknimyndinni Wicked City (1987) má finna djöfla með tenntar píkur og í subbugrínmyndinni Killer Condom (1996) birtist hún í gervi smokks sem étur getnaðarlimi karlmanna. Auk þess hefur vagínan öðlast raunverulegt líf í Rape-aXe smokkunum, sem eru ætlaðir sem vörn gegn nauðgurum og hafa vakið upp miklar umræður og deilur. Konur geta sett í sig smokkinn eins og lykkju, en hann er gildra sem stingur örsmáum fleygum inn í lim karlmannsins, sem ekki er hægt að losa úr nema með læknishjálp. Svo virðist sem að vagina dentata sé að komast aftur í tísku og fræðigreinarnar geta þá nánast farið að skrifa sig sjálfar.