Verandi safn greina, sagna og hugleiðinga sem ælt hefur verið út um hvippinn og hvappinn.

Saturday, March 11, 2006

Sögur úr Andabæ

Ég var staddur heima í Reykjavík í janúar og þar sem ég rölti um miðbæinn í frostinu og snjónum datt mér í hug að gefa öndunum brauð. Heima hjá mömmu og pabba fann ég brauðleifar í frystinum sem ég þýddi og stakk í poka. Það er vel við hæfi og lýsandi fyrir inntak þessa pistils að fyrsta mannfólkið sem ég sá niðri við Tjörn voru tveir ungir menn – líklega nemar úr MR – sem voru að kasta snjóboltum í endurnar við mjóbrúna sem liggur á milli Iðnó og Ráðhússins.

Eiga endurnar ekki nógu erfitt með að þrauka, sveltandi í skítakulda? Þarf að bæta tveimur vitleysingum sem drepa tímann með snjókasti ofan á öll harðindin? Viðbrögð mín voru ekki nógu hörð, eftir á að hyggja. Ég sendi þeim illt auga, gekk til þeirra og kallaði þá hálfvita. Þeir hættu snjókastinu (í bili að minnsta kosti) og svöruðu fyrir sig að þeir væru ekki að miða beint á endurnar (og að þær hefðu bara gaman af þessu). Ég yrti ekki á þá meir heldur sneri mér frá, tók fram pokann og hóf að drepa tímann með brauðkasti. Þar sem ungmennin gengu í burtu vona ég að þeir hafi tekið eftir framtaki mínu og jafnvel hugsað sig um stundarkorn – í stað þess að fleygja snjó er hægt að fleygja brauði! Athöfnin er svipuð – þeir geta haft gaman af því að henda hlutum í endur (án þess að miða beint á þær) og endurnar kynnu eflaust að meta það betur en boltana (þær eru umkringdar snjó hvort eð er).

Strákarnir voru komnir í hvarf áður en alvöru lætin byrjuðu. Ég var með brauðið sneitt í poka og ætlaði mér að rífa einn bita í einu, eins og venjan er – en réði engan veginn við eftirspurnina. Áður en ég vissi af var ég umkringdur öndum, svönum og gæsum sem komu hvaðanæva að. Straumurinn var endalaus! Ég neyddist til að flýja af hólmi, setjast niður á bekk við Lækjargötu og búta brauðið sundur í rólegheitum. Því næst sneri ég aftur á vígvöllinn. Ég var ekki einn á svæðinu. Þarna var kona að taka ljósmyndir af fuglunum (ekki að gefa brauð) og maður með barn (sem var að gefa brauð). Fuglarnir voru svo sársvangir að það var ómögulegt að ráða við hópinn. Ég sem reyni gjarnan að gefa hverjum fugli jafnt gat ekki annað en sturtað úr pokanum yfir fuglaþvöguna og látið mig hverfa.

Ég nefndi þetta við móður mína sem sagði mér að hún hefði gengið fram á svan stuttu áður og fylgst með honum reisa sig hátt og blaka vængjunum. Undir tignarlegu yfirborði var hægt að telja í honum beinin. Því spyr ég: hvaða furðulegi misskilningur hefur valdið því að borgarbúar gefa öndunum aðeins á sumrin, þegar þær hafa það ágætt hvort eð er, en láta þær svelta á veturna? Og hvers vegna fer fullorðið fólk aðeins niður að Tjörn þegar börn eru með í för? Hér er eitthvað dularfullt á ferð. Við ættum að hrósa happi yfir því að fuglarnir nenni að hanga hér á rassgatinu Íslandi yfir vetrartímann – það er hinn mesti misskilningur hjá þeim að fljúga ekki eitthvað annað (þeir halda að sjálfsögðu að hér sé til nóg að borða eftir allar ríkulegu sumarmáltíðirnar). En svo er ekki. Þeir eru skraut til að fegra miðbæinn fyrir smáborgarbúa til að dást að á góðviðrisdögum. Hina dagana geta þeir að mestu leyti átt sig.

Stuttu síðar hélt ég matarboð sem endaði með ferð niður í miðbæ. Áður en við héldum á ölhúsin að sturta peningum niður í drykkjuskap dró ég liðið niður að Tjörn með nokkra poka af brauði. Okkur var tekið fagnandi og færri komust að en vildu. Síðan kom í ljós að ekki höfðu allir gestirnir skilað sér – sumir fóru beina leið á barinn því að það er svo hallærislegt að gefa öndunum brauð. Það er fyrir börn, sérvitringa og gamalt fólk.


Saturday, March 4, 2006

Að loka eyrunum

Fyrir stuttu var ég staddur á rafhátíðinni Sonic Acts sem er haldin árlega í Amsterdam. Hátíðin samanstóð af tölvumyndlist, fyrirlestrum og tónleikum þar sem raftónlist var í fyrirrúmi. Fyrsta kvöldið var tileinkað tölvumyndlist þar sem fjallað var sögulega um tilurð og þróun tölvulistar og verk tveggja listahópa voru sýnd. Þau samanstóðu af tölvugerðum hreyfimyndum á risaskjá með fylgjandi raf(ó)hljóðum.

Ástæðan fyrir því að ég minnist á þessa hátíð er að þarna sat ég ásamt Helgu Björg kærustunni minni og upplifði tilraunaverkið AREAL eftir hópinn Granular Synthesis. Í örfáum orðum hófust lætin með naumhyggju – einfalt myndrænt form byggt á láréttri línu og látlaust rafrænt suð. Hægt og rólega tók listaverkið að eflast – línan tók að stækka og verða bjartari þar til hún endaði sem risastórt leifturljós sem réðst á áhorfendur með mestu árásargirnd í von um að senda sem flesta í flogaveikiskast. Hljóðið þróaðist á sama hátt frá einföldu suði til slíkrar hátíðni að hver einasti hundur í borginni hefur fundið fyrir áhrifunum – og bassinn varð nógu sterkur til að mauka innyflin og koma hjartslættinum í óreglu. Við sátum á öðrum bekk með engan fyrir framan okkur – alltof nálægt hægri hátalarastæðunni – og vorum því á besta stað til að upplifa ágengni verksins til fullnustu. Ég var fljótur að loka augunum og líta undan því ég gat ekki einbeitt mér að skjánum lengi í einu. Gróflega áætlað eyddi ég líklega helmingi tímans á flótta undan yfirþyrmandi margmiðlunarlistinni – án þess að nokkurn tímann yfirgefa sætið mitt. Verkið stóð yfir í áttatíu mínútur.

Helga gafst ekki jafnauðveldlega upp. Hún vildi alls ekki bugast undir vilja listahópsins, hvers takmark var bersýnilega að ganga fram af áhorfendum af öllum mætti. Hún píndi sig af öllum kröftum langt fram undir síðari hluta verksins en neyddist að lokum til að fela sig á bak við augnlokin líkt og auminginn við hlið hennar (sem rennir stoðum undir þær kenningar að kvenmenn búi yfir hærri sársaukaþröskuldi en karlmenn). Eftir að þrekraun okkar lauk vorum við bæði úrvinda á sál og líkama og þrátt fyrir blendnar tilfinningar gagnvart listaverkinu gátum við ekki annað en fyllst ákveðinni hrifningu. Þetta minnti einfaldlega á pyntingar og við höfðum setið undir þeim sjálfviljug. Það var ekkert Clockwork Orange-tæki sem hélt augunum opnum – þeim gátum við lokað (en píndum okkur engu að síður til að kíkja af og til). Hins vegar minnti atvikið mig á að þó við getum gjarnan lokað augunum getum við aldrei lokað eyrunum. Það er ekki af ástæðulausu að hljóð skiptir gríðarlegu máli í hryllingsmyndum og að í mörgum eftirminnilegum ofbeldisatriðum er subbuskapurinn utan rammans og hljóðið í fyrirrúmi. Áhorfendur geta auðveldlega útilokað hið sjónræna en hljóðið smýgur alltaf í gegn nema flúið sé af vettvangi (og það er ekkert hryllilegra en hljóð án sýnilegrar uppsprettu).

Jafnvel eftir að við höfðum bæði litið undan þurftum við enn að þola óhljóðin – hátíðni, skruðninga og bassa – af slíkum styrkleika að líkja mætti við líkamlegt ofbeldi. Velta má vöngum yfir því hvers vegna við og allur áhorfendahópurinn létum okkur hafa það að sitja undir þvílíkri nauðgun á skilningarvitunum – var það virðing gagnvart listforminu, stríðandi þrjóska gagnvart áætlun listahópsins eða úrkynjuð útrás bældrar samúðar og ómeðvitaðrar sektarkenndar vegna þess að við þykjumst búa í velmegunarsamfélagi á meðan aðrar lífverur þurfa víða að þjást? Kannski fáum við bara ekki nógu oft tækifæri á að láta misþyrma okkur almennilega.