Verandi safn greina, sagna og hugleiðinga sem ælt hefur verið út um hvippinn og hvappinn.

Thursday, January 3, 2008

Bókstafleg fræðimennska

Þegar ég var á fyrsta ári í bókmenntafræði við Háskóla Íslands komst ég í kynni við ýmis fræðileg hugtök sem heilluðu misjafnlega. Það var erfitt að fá ekki aulahroll yfir oftúlkunum sem leyndust víða í námsefninu og þá jafnaðist ekkert á við sálgreiningarkenningar þar sem hvert einasta smáatriði snerist um kynlíf og kynhlutverk. Freud stakk upp kollinum hér og þar og sagði mér að allt lárétt væri kvenlegt, allt lóðrétt væri reðurtákn og að geldingaróttinn og tippaöfundin væru ráðandi kraftar að baki allri mannlegri tilvist. Þetta var stór biti á sínum tíma en eftir því sem ég hélt sífellt lengra inn í heim hryllingsfræðanna varð auðveldara að kljást við flækjurnar. Ég hætti að taka Freud bókstaflega og skildi að sálgreiningarhugtökin eru orðræðutól í fræðunum, en ekki leit að heilögum sannleik. Hryllingsmyndir eru sannkallaður leikvöllur fyrir sálgreinendur, enda snúast þær fyrst og fremst um ofbeldi og kynlíf og því ekki að furða að Freud og félagar hafi stýrt umræðunni þar um áratugabil.

Ég er að rifja upp bókmenntafræðina vegna hugtaks sem ég var búinn að steingleyma en var að knýja dyra hjá mér á ný. Það er iðulega tengt Freud og geldingaróttanum, en virðist eiga sér þó nokkra baksögu í þjóðsögum hinna og þessa menningarkima í heiminum. Ég man að ég glósaði hugtakið í bókina mína (ég var annars gríðarlatur að glósa) einfaldlega vegna þess að ég trúði ekki að kennarinn væri farinn að rausa um tenntar píkur fyrir framan bekkinn – í hvaða nám var ég eiginlega búinn að koma mér? Vagina dentata er latneska heitið og líffærið er einfaldlega eins og það hljómar. Mér skilst að ákveðnir hópar indíána í N-Ameríku hafi m.a. átt goðsögur um hættulegar konur sem gátu steingelt karlmanninn við kynmök með einum „munnbita“. Það gefur auga leið að bókmenntafræðingar og sálgreinendur tóku myndlíkingunni opnum örmum og vagina dentata er þar hluti af almennu námskeiði um hugtök og heiti.

Ímyndin um tennta píku teygði vissulega á ímyndunaraflinu, en annars man ég ekki eftir að hafa heyrt af henni aftur í háskólanáminu. Fyrir nokkru sá ég hins vegar stiklu fyrir hryllingsmyndina Teeth (2007) sem vakti athygli á Sundance hátíðinni í fyrra. „Engin rós er án þyrna“ segir auglýsingalínan á veggspjaldinu, en myndin segir frá ungri konu sem uppgötvar að hún býr yfir hræðilegu leyndarmáli þegar hún sefur hjá í fyrsta sinn. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það að hún er með hárbeittar tennur neðan mittis, sem býður upp á mikla sjónræna gleði í hryllingsmynd. Bókmenntafræðingurinn innra með mér skríkti af kátínu og ég bíð spenntur eftir að berja herlegheitin augum. Það er alltaf áhugavert þegar slík hugtök eru tekin bókstaflega og Teeth sver sig í ágæta hefð kvikmynda sem leika sér að fræðunum og fíflast aðeins í akademíunni. Ætli myndin endi ekki í námsskrá HÍ áður en langt um líður.

Vagina dentata hefur þó látið sjá sig í kvikmyndum áður. Í japönsku teiknimyndinni Wicked City (1987) má finna djöfla með tenntar píkur og í subbugrínmyndinni Killer Condom (1996) birtist hún í gervi smokks sem étur getnaðarlimi karlmanna. Auk þess hefur vagínan öðlast raunverulegt líf í Rape-aXe smokkunum, sem eru ætlaðir sem vörn gegn nauðgurum og hafa vakið upp miklar umræður og deilur. Konur geta sett í sig smokkinn eins og lykkju, en hann er gildra sem stingur örsmáum fleygum inn í lim karlmannsins, sem ekki er hægt að losa úr nema með læknishjálp. Svo virðist sem að vagina dentata sé að komast aftur í tísku og fræðigreinarnar geta þá nánast farið að skrifa sig sjálfar.