Morguninn eftir að ég gisti í fyrsta sinn í nýrri íbúð í miðbæ Reykjavíkur lýstu fyrirsagnir dagblaða því yfir að tugþúsundir hefðu misst heimili sín í Líbanon. Hálfum öðrum mánuði fyrr hafði ég kvatt vini eftir vetursetu í Amsterdam. Þeirra á meðal var líbanskur bekkjarfélagi minn. Ég var að flytja í nýja íbúð og ljúka við lokaritgerðina mína, hann var að gera sér stutta ferð heim til Beirút en stefndi svo á að snúa aftur til Amsterdam til að hefja doktorsnám í kvikmyndafræði.
Þegar ég frétti fyrst af sprengjuárásunum á Beirút gripu þær mig á annan hátt en þær stríðsfréttir sem ég hef áður lesið. Ég þykist vera upplýstur ofbeldisandstæðingur, gekk í Amnesty International og mæti á hernaðarmótmæli, hef reynt að fylgjast með gangi heimsmála og bölvað og grátið yfir ástandi heimsins. En aldrei fyrr hafði ég upplifað að eiga vin sem býr í sjálfri hringiðunni. Hugur minn leitaði strax til hans og með hverri frétt sem birtist, eftir því sem eyðileggingin jókst og heilu hverfin og þorpin voru jöfnuð við jörðu, varð mér æ oftar hugsað til vinar míns, hvernig heimsmyndin hlyti að hafa breyst og hvernig það væri að fylgjast með landinu sínu hverfa.
Síðan frétti ég af því að hann hafði sett í gang bloggsíðu þar sem hann skrifaði reglulega um upplifanir sínar og framgang stríðsins. Ég settist niður og las hverja færsluna á fætur annarri og fékk svör við ýmsum vangaveltum. Hann býr á frekar öruggum stað og fjölskylda hans var heil á húfi. Frá fyrstu hendi lýsir hann því að búa undir stríðsátökum: „það er ekki stöðugt óttaástand heldur undirliggjandi stress, spenna sem nær ekki að umbreytast í ótta. Maður reynir að lifa sínu daglega lífi, jafnvel þótt lífinu hafi verið seinkað um óráðinn tíma – eins og við segjum, allir dagar eru eins og sunnudagar.“
Eftir því sem lengra er lesið verður vonleysið og kaldhæðnin sterkari. Hann skrifar um uppbyggingu síðustu ára sem hefur verið sprengd í burtu. Þegar búið er að ferja alla erlenda ríkisborgara burt er enginn eftir sem ekki má drepa – aðeins arabar. Hann hefur enga trú á Sameinuðu Þjóðunum. Hann hefur enga trú á mannréttindum. Arabar eru ekki manneskjur í augum heimsins. Hann skrifar um hliðar sem heyrast ekki í fréttum Vesturlanda og veltir upp efasemdarhugmyndum um notkun hugtaka á borð við hryðjuverk, lýðræði og mannréttindi.
Ég hef aldrei fyrr dvalið erlendis nógu lengi til að kynnast fólki líkt og í vetur og ég er þakklátur að hafa getað teygt vitund mína til fleiri landa. Vissulega er fáránlegt að til þess þurfi að koma – ég þarf ekki að þekkja neinn persónulega til að finna til með þeim eða hafa skoðun á málefnum annarra heimshorna. Á tímum heimsþorpsins og veraldarvefsins getur sjónrænt áreiti hins vegar valdið því að við sljóvgumst frammi fyrir fréttamyndum af stríði og ofbeldi. Þá getur hjálpað að upplifa persónulega tengingu við atburðinn. Ég mun alltaf reyna að hugsa aftur til þess þegar ég las fyrstu fréttirnar af eyðileggingunni í Beirút og muna eftir þeirri tilfinningu að þekkja einhvern sem býr þar í blokk, óviss um afdrif hans og fjölda annarra. Ég vil ekki gleyma því. Ég vil læra af þessari reynslu og halda tilfinningasambandi við umheiminn eftir bestu getu.
