Það var vissulega hressandi upplifun að sitja í stóra salnum í Háskólabíói, umkringdur börnum og fjölskyldum, á kvikmyndatónleikum Sinfóníunnar síðustu helgi. Reynslan tók á sig súrrealíska mynd þegar barnapersónan Barbara og músin Maxímús Músíkus tóku til við að kynna verkin. Barbara útskýrði með látum og látbragði hvað kvikmyndatónlist væri – nokkuð sem börnin eru alltaf að hlusta á án þess að vita af því – og ég fór í fyrsta sinn að ímynda mér krakka sem hafa kannski aldrei tengt tónlistina við lifandi hljómsveit áður. Þegar tónleikarnir hófust með krafti á forleik John Williams að fyrstu Stjörnustríðs-myndinni hafa örugglega mörg ný ljós kviknað í haus og eyrum yngstu áheyrandanna. Slík verk eru í mörgum tilvikum fyrstu upplifanir ungra krakka á sinfónískri músík og beintenging við heim klassískrar tónlistar sem ekki má vanmeta. Kvikmyndatónlist í barna- og fjölskyldumyndum er oftar en ekki undir rammklassískum áhrifum – John Williams er langbesta dæmið um það, enda hefur hann ekki farið í felur með vísanir í hin og þessi þungaverk tónlistarsögunnar (í Stjörnustríði má auðveldlega finna Holst og Stravinsky, svo eitthvað sé nefnt).
Ég ólst upp innan um mikið af klassískri tónlist, en ég get með sanni sagt að ég hafi fyrst byrjað að hlusta á hana af alvöru í gegnum kvikmyndir. Fyrsti geisladiskurinn sem ég eignaðist var Karnival dýranna eftir Saint-Saëns, sem kemst afar nálægt því að vera kvikmyndatónlist, enda var tónskáldið einn af þeim allra fyrstu að frumsemja tónlist fyrir kvikmyndir snemma á 20. öld. Aðrar gamlar minningar eru úr Fantasíu (1940), sem ég horfði mikið á sem krakki. Þegar ég fékk að fara á Sinfóníutónleika var það toppurinn að heyra Moussorgsky þruma yfir djöflunum á fjallinu eða Mikka mús að berjast við strákústaherinn. Svo kom John Williams og öll lykilverkin hans, sem höfðu gríðarmikil áhrif á mig á sínum tíma, þrátt fyrir að ég sé að miklu leyti vaxinn upp úr honum núna. Ekki má heldur gleyma kvikmyndaflóru Stanley Kubrick, sem notaði klassíska músík óspart og hafnaði jafnvel frumsaminni tónlist á síðustu stundu og setti gömlu meistarana á hljóðtrakkið í staðinn (fræg er sagan af aumingja Alex North sem mætti á frumsýningu 2001 (1968) án þess að vita að tónlistin hans hafði verið tekin burt). Ég uppgötvaði helling af músík í gegnum Kubrick og nú varð aðalmálið að heyra Béla Bartók eða Penderecki flutta á sviði. Þá fóru líka ýmsar tengingar að gera vart við sig og ég tók að bera kennsl á línurnar sem liggja á milli klassískrar tónlistar (og nútímaklassík) og kvikmyndaheimsins. Enn kviknaði á nýjum perum, til dæmis þegar ég áttaði mig á því að gömul æskuminning úr Aliens (1986) – titilstefið sjálft eftir James Horner – var tekin beint úr Gayane-balletnum eftir Khatchaturian!
