Verandi safn greina, sagna og hugleiðinga sem ælt hefur verið út um hvippinn og hvappinn.

Saturday, November 18, 2006

Vér meðmælum allir!

Í seinasta mánuði var haldinn útifundur á Austurvelli til að mótmæla stöðu menntakerfisins í landinu. Fundurinn var haldinn af Stúdentaráði HÍ og tilgangurinn var að gera menntamálin að kosningamáli, að búa betur að öllum menntastigum og leggja meiri metnað og peninga í kerfið. Samkoman var vel sótt af stúdentum og undirskriftasöfnun var hleypt af stað til að vekja þjóðina til vitundar. Hvort þessi fundur hafi haft áhrif á stefnuskrá stjórnmálaflokkana veit ég ekki, né heldur hvort þessi fundur geti talist sérstaklega merkilegur hvað varðar menntamál á Íslandi um ókomin ár. Hins vegar gæti þessi fundur átt sér sögulegan sess á allt öðru sviði. Ekki varðandi menntamálin, heldur ákveðna samfélagslega tilhneigingu til að hræðast allt það sem við kemur mótmælum. Stúdentar – sá samfélagshópur sem á sér orðstír sem hópur hugsandi ungmenna sem taka fyrir málefni, benda á rökvillur og búa yfir orku og styrk til að hafa raunveruleg áhrif á umhverfið (nógu ung til að standa ekki á sama, nógu gömul til að mark sé á þeim tekið) – gátu ekki notað orðið “mótmæli” til að lýsa útifundinum eða tilgangi hans heldur urðu að grípa til andheitisins “meðmæli”, vegna þess að þau óttuðust að ekki yrði tekið mark á mótmælum því það þætti of neikvætt.

“Við viljum [...] gera þetta með jákvæðum hætti,” útskýrir formaður Stúdentaráðs í viðtali við Morgunblaðið 10. október síðastliðinn. Hugsa sér hvílíka hræðslu við mótmæli sem þetta felur í sér – að geta ekki notað orðið sem orðabækur hafa komið sér saman um til að lýsa þeim atburði sem þarna fór fram! Í stað þess að nota þetta orð – sem ber hvorki með sér neikvæðan né jákvæðan merkingarauka eitt og sér – þurfti Stúdentaráð að fara 180° snúning til að koma skoðunum sínum á framfæri. Í stað þess að mótmæla einfaldlega áherslum Alþingis varðandi menntunarmál, þurfti að mæla með þeim áherslum sem eru ekki til staðar hjá Alþingi – “mæla með menntun”. Hver er tilgangurinn með þessum orðaleik, þessum útúrsnúning? Hann er hvorki gerður út í loftið né til að vera sniðugur, heldur til að friða ráðandi fordóma. Á síðari árum hafa “mótmæli” og “mótmælandi” ekki aðeins fengið á sig neikvæðan blæ heldur beinlínis breyst í skammar- og blótsyrði. Ég mótmæli ekki virkjun. Ég mótmæli ekki stríðsstuðningi. Ég mæli heldur með eitthverju allt öðru. Vér mótmælum ekki allir – vér meðmælum.

Ég veit ekki hvaðan tilhneigingin kemur, hvers vegna sögnin “að mótmæla” er orðin meiðyrði. Það gæti verið vegna erlendra mótmælenda við Kárahnjúka, vegna sokkinna hvalveiðiskipa, þeirrar ímyndar sem fjölmiðlar hafa skapað af mótmælafundum eða kaldhæðni nýrra kynslóða – um það má deila. En mótmælendur eru ekki lengur einstaklingar mótfallnir ólíkum málstöðum, heldur einsleitur hópur fólks sem virðist ekki gera annað en að mótmæla – hverju sem er, hvenær sem er. Ert þú Mótmælandi – ert þú einn af Þeim? Orðið er við það að missa merkingu sína því samfélagið segir okkur að mótmæli séu tilgangslaus. Þau eru andfélagsleg, vitlaus, leiðinleg og röng. Þetta eru skilaboðin sem bíða næstu kynslóðar. En ef fólk getur ekki staðið með eigin skoðunum, ef það smjaðrar fyrir samfélaginu með andheitum og getur ekki sett sig hreinskilningslega upp á móti því sem það er mótfallið, hvernig er þá hægt að taka mótmælin alvarlega? Með því að meðmæla missir athöfnin allan kraft, allt líf og blóð. Orðið geldist, merking þess hverfur, og tilgangurinn með því. Ég vil frekar sjá tíu mótmælendur samankomna á Austurvelli að mæla af sannfæringu heldur en fimm hundruð meðmælendur.

Saturday, September 2, 2006

Bloggað í Líbanon

Morguninn eftir að ég gisti í fyrsta sinn í nýrri íbúð í miðbæ Reykjavíkur lýstu fyrirsagnir dagblaða því yfir að tugþúsundir hefðu misst heimili sín í Líbanon. Hálfum öðrum mánuði fyrr hafði ég kvatt vini eftir vetursetu í Amsterdam. Þeirra á meðal var líbanskur bekkjarfélagi minn. Ég var að flytja í nýja íbúð og ljúka við lokaritgerðina mína, hann var að gera sér stutta ferð heim til Beirút en stefndi svo á að snúa aftur til Amsterdam til að hefja doktorsnám í kvikmyndafræði.

Þegar ég frétti fyrst af sprengjuárásunum á Beirút gripu þær mig á annan hátt en þær stríðsfréttir sem ég hef áður lesið. Ég þykist vera upplýstur ofbeldisandstæðingur, gekk í Amnesty International og mæti á hernaðarmótmæli, hef reynt að fylgjast með gangi heimsmála og bölvað og grátið yfir ástandi heimsins. En aldrei fyrr hafði ég upplifað að eiga vin sem býr í sjálfri hringiðunni. Hugur minn leitaði strax til hans og með hverri frétt sem birtist, eftir því sem eyðileggingin jókst og heilu hverfin og þorpin voru jöfnuð við jörðu, varð mér æ oftar hugsað til vinar míns, hvernig heimsmyndin hlyti að hafa breyst og hvernig það væri að fylgjast með landinu sínu hverfa.

Síðan frétti ég af því að hann hafði sett í gang bloggsíðu þar sem hann skrifaði reglulega um upplifanir sínar og framgang stríðsins. Ég settist niður og las hverja færsluna á fætur annarri og fékk svör við ýmsum vangaveltum. Hann býr á frekar öruggum stað og fjölskylda hans var heil á húfi. Frá fyrstu hendi lýsir hann því að búa undir stríðsátökum: „það er ekki stöðugt óttaástand heldur undirliggjandi stress, spenna sem nær ekki að umbreytast í ótta. Maður reynir að lifa sínu daglega lífi, jafnvel þótt lífinu hafi verið seinkað um óráðinn tíma – eins og við segjum, allir dagar eru eins og sunnudagar.“

Eftir því sem lengra er lesið verður vonleysið og kaldhæðnin sterkari. Hann skrifar um uppbyggingu síðustu ára sem hefur verið sprengd í burtu. Þegar búið er að ferja alla erlenda ríkisborgara burt er enginn eftir sem ekki má drepa – aðeins arabar. Hann hefur enga trú á Sameinuðu Þjóðunum. Hann hefur enga trú á mannréttindum. Arabar eru ekki manneskjur í augum heimsins. Hann skrifar um hliðar sem heyrast ekki í fréttum Vesturlanda og veltir upp efasemdarhugmyndum um notkun hugtaka á borð við hryðjuverk, lýðræði og mannréttindi.

Ég hef aldrei fyrr dvalið erlendis nógu lengi til að kynnast fólki líkt og í vetur og ég er þakklátur að hafa getað teygt vitund mína til fleiri landa. Vissulega er fáránlegt að til þess þurfi að koma – ég þarf ekki að þekkja neinn persónulega til að finna til með þeim eða hafa skoðun á málefnum annarra heimshorna. Á tímum heimsþorpsins og veraldarvefsins getur sjónrænt áreiti hins vegar valdið því að við sljóvgumst frammi fyrir fréttamyndum af stríði og ofbeldi. Þá getur hjálpað að upplifa persónulega tengingu við atburðinn. Ég mun alltaf reyna að hugsa aftur til þess þegar ég las fyrstu fréttirnar af eyðileggingunni í Beirút og muna eftir þeirri tilfinningu að þekkja einhvern sem býr þar í blokk, óviss um afdrif hans og fjölda annarra. Ég vil ekki gleyma því. Ég vil læra af þessari reynslu og halda tilfinningasambandi við umheiminn eftir bestu getu.

Á meðan ég sit í nýju íbúðinni og rita þennan pistil er hann enn að skrifa um ástandið í heimalandinu og hefur birt fjölda ljósmynda auk greina úr öðrum fjölmiðlum á síðunni sinni. Ég fylgist áfram með úr fjarska og reyni að halda umræðunni um Líbanon lifandi með því að birta vefslóð félaga míns hér: theworldismyidea.blogspot.com.

Saturday, July 15, 2006

Sláturhúsdýragarð

Fyrst þegar ég sá stuttheimildamyndina Dýrablóð (1949), eða Le Sang des Bêtes, eftir Georges Franju ætlaði ég varla að trúa að slík mynd skuli hafa verið gerð fyrir tæpum sextíu árum síðan. Dýraréttindabarátta eins og hún þekkist í dag varð ekki að raunverulegri hreyfingu fyrr en á áttunda áratugnum og stuttmynd Franjus varð fljótlega þekkt sem sterkur fyrirboði hennar. Á rúmum tuttugu mínútum stillir Franju upp ljóðrænum og fögrum veruleika í úthverfum Parísarborgar undir lok fimmta áratugarins á móti vélrænni verkamennsku sem á sér stað á bak við luktar dyr hverfissláturhúsanna. Franju forðast að falla ofan í predikanir með því að nota tilfinningalausar lýsingar sem endurspegla hvernig vanafestan hefur dregið allt líf úr fjöldaslátruninni. Tilgangur myndarinnar frá sjónarhóli Franju var ekki endilega að stuðla að grænmetisáti – áhugi hans lá frekar í togstreitunni og þverstæðunni sem fyrirfinnst í sambandi smáborgaranna og slátraranna, á milli almennings sem kýs að búa í þægilegri sjálfsblekkingu um gang lífsins og verkamanna sem leggja kraft sinn í að viðhalda blekkingunni.
Dýrablóð hefur verið skilgreind sem “últra-realísk” vegna þess hversu hreinskilnislega er farið með umfjöllunarefnið – það er ekki reynt að fela eða fegra neitt. Allar helstu slátrunaraðferðir Parísar eru dregnar upp og sögumaður lýsir nákvæmlega hvað felst í hverri þeirra án þess að fella dóm (það er áhorfandans verk). Sumir geta ekki horft lengra en á upphafsslátrunina þar sem stór hvítur hestur er stunginn í höfuðið með þrýstibyssu en þeir sem þrauka fá að fylgjast með nautgripum fá exi í höfuðið, kálfum afhausuðum lifandi og lambalíkum spriklandi saman uppi á borði löngu eftir að þau hafa verið tekin af lífi (svo eitthvað sé nefnt). Ég fer ekki út í smáatriðalýsingar en áhugasamir
geta nálgast stuttmyndina á nýlegri Criterion-útgáfu annars stórvirkis Franjus, Augum án andlits (1959), eða Les Yeux sans Visage. Ég vil hins vegar rétt velta fyrir mér áhrifum þess að horfa á mynd á borð við Dýrablóð.

Því verður ekki neitað að ofbeldi sem á sér stað í sláturhúsum er eitt best varðveitta leyndarmál hvers nútímasamfélags. Fólk getur rifist fram og aftur um hvort það sé réttlætanlegt eða ekki en það getur ekki horft framhjá því sem á sér stað – dýr eru drepin og blóðið rennur. Í stórmarkaðsmenningu á borð við okkar breikkar gjáin á milli kjötætunnar og bráðarinnar sífellt. Neytendur hafa gjörsamlega misst samband við fæðið og bitarnir sem vafnir eru í plast í kjötborðinu framkalla engin tilfinningatengsl lengur. Flestir kjötneytendur eru ánægðir með að taka óbeinan þátt í því að úthella blóði en hversu margir hafa það í sér að taka virkan þátt með því að slátra og verka líkama upp á eigin spýtur? Verk á borð við Dýrablóð geta komið á fót nýrri tengingu við dauðann og blásið fersku lífi í staðnað ofbeldi. Hver sá sem upplifir þann veruleika neyðist til að staldra við og velta fyrir sér stöðu sinni stundarkorn því að þægilegur vafinn sem fylgir því að versla í stórmarkaðinum hlýtur að hverfa frammi fyrir öllu blóðinu. Þá verður hver og einn að taka ákvörðun, ætli sá hinn sami að vera hreinskilinn í skoðun sinni – annað hvort styður hann og réttlætir verknaðinn með því að horfast beint í augu við kjötið eða kýs að neita honum og gefa kjöt upp á bátinn. Millivegur blekkingarinnar er ekkert minna en hræsni. Borgarbúar ættu að brjóta sér leið í gegnum tálsýninguna með því að sækja sláturhúsin heim ásamt fjölskyldum sínum og gerast hreinskilnar kjötætur á ný.


Saturday, May 6, 2006

Maríó kemur til bjargar!

Nýlega kom upp mál í Bandaríkjunum sem fékk mig enn og aftur til að velta fyrir mér lyginni sem býr að baki hugtakinu “almenningsrými”. Orðið bendir til þess að um sé að ræða rými þar sem fólki er frjálst að tjá sig á almannafæri en sannleikurinn er að rýminu er stjórnað af ríkisvaldinu og hver samfélagsþegn verður að haga sér samkvæmt því. Gott og vel – það eru ákveðnar reglur sem almenningur hefur komið sér saman um og sumar þeirra eru ágætar (t.a.m. þær sem geta hindrað ofbeldi og skemmdarverk). Hins vegar er til bálkur af óskráðum reglum sem finnast ekki í neinum lögum. Þær kemst hver sá upp á kant við sem reynir að haga sér “óeðlilega” í almenningsrými.

Það er til einföld tilraun sem allir geta reynt – að klæða sig furðulega og halda að næsta samkomuplássi. Ég hef heyrt vitnisburð fólks sem hefur unnið við trúðsstörf á almannafæri og hann er gjarnan ófagur – svo virðist sem almenningur gefi sér veiðileyfi á hvern þann sem dirfist að klæðast slíkri vitleysu. Þetta brýst helst fram í munnlegum árásum. Eitt sinn var kærastan mín íklædd búningi á vegum Götuleikhússins úti á götu þar sem fjöldi bíla hægðu á sér svo farþegarnir gætu betur æpt meiðyrði að henni. Sú bitra lífsreynsla endaði með ljóðrænu réttlæti þegar einn ökumaður var of einbeittur við að æpa hástöfum “brenndu í helvíti!” til að hafa augu með umferðinni og klessti beint aftan á rassinn á bílnum fyrir framan. Enginn meiddist en nokkuð var um hlátur. Það er mikið til af sögum af fólki sem lendir upp á kant við almenning vegna óvanalegrar hegðunar án þess þó að brjóta nokkur lög. Í besta falli veldur slík hegðun aðeins hljóðlátu fussi og sveii en í versta falli getur hún leitt til líkamsárása – eða, líkt og í tilviki fimm ungra kvenna í Ohio, til handtöku og mögulegrar lögregluákæru.

Atvikið má rekja til vefsíðu á vegum náunga sem kallar sig “Poster Child” (www.qwantz.com/posterchild). Hann telur almenningsrýmið hafa verið yfirtekið af auglýsingum þar sem hvorki er pláss fyrir list né frjálsa tjáningu og öllu leyfilegu efni er miðlað í gegnum auglýsingastofur. Af því tilefni hefur hann hvatt alla samfélagsþegna til að sýna andstöðu í verki með því að koma fyrir eða setja upp spurningabox eins og voru í gömlu Super Mario Bros. tölvuleikjunum frá Nintendo – kassarnir sem hægt var að hoppa upp í og fá pening, svepp, stjörnu eða önnur “power-up”. Á síðunni má finna leiðbeiningar að því hvernig setja má saman slík box ásamt fjölda ljósmynda frá áhugasömum sem hafa hengt gripina upp um bæi hvarvetna um heim og fylgst með fólki fyllast undrun og gleði eða einfaldlega hringja í yfirvaldið og kvarta – því hvað annað er hægt að gera þegar maður gengur fram á eitthvað sem lagast ekki að vanafestunni?

Þetta hlaut að fara illa að lokum. Þegar fimm ungar konur settu upp Mario-kassa á víð og dreif um bæinn Ravenna í Ohio af tilefni fyrsta degi aprílmánaðar þessa árs endaði það með sprengjusveit og látum vegna áhyggjum almennings gagnvart litríkum pappakössum sem gætu mögulega innihaldið hryðjuverk. Í fréttunum lýstu lögreglumenn því yfir að í hættulegum heimi væri einfaldlega ekki hægt að láta svona. Engu að síður sluppu stúlkurnar við ákærur. Því hvet ég alla landsmenn til að fylgja fordæmi þeirra, sýna samstöðu, föndra kassa af öllum stærðum og gerðum og hengja upp í hvern staur – eða einfaldlega skapa eitthvað nýtt, koma því fyrir í næstu verslunarmiðstöð og reyna (löglega) að koma rýminu aftur til fólksins og úr klóm auglýsingastofanna. Meiri list á almannafæri! Áfram Maríó!

Saturday, March 11, 2006

Sögur úr Andabæ

Ég var staddur heima í Reykjavík í janúar og þar sem ég rölti um miðbæinn í frostinu og snjónum datt mér í hug að gefa öndunum brauð. Heima hjá mömmu og pabba fann ég brauðleifar í frystinum sem ég þýddi og stakk í poka. Það er vel við hæfi og lýsandi fyrir inntak þessa pistils að fyrsta mannfólkið sem ég sá niðri við Tjörn voru tveir ungir menn – líklega nemar úr MR – sem voru að kasta snjóboltum í endurnar við mjóbrúna sem liggur á milli Iðnó og Ráðhússins.

Eiga endurnar ekki nógu erfitt með að þrauka, sveltandi í skítakulda? Þarf að bæta tveimur vitleysingum sem drepa tímann með snjókasti ofan á öll harðindin? Viðbrögð mín voru ekki nógu hörð, eftir á að hyggja. Ég sendi þeim illt auga, gekk til þeirra og kallaði þá hálfvita. Þeir hættu snjókastinu (í bili að minnsta kosti) og svöruðu fyrir sig að þeir væru ekki að miða beint á endurnar (og að þær hefðu bara gaman af þessu). Ég yrti ekki á þá meir heldur sneri mér frá, tók fram pokann og hóf að drepa tímann með brauðkasti. Þar sem ungmennin gengu í burtu vona ég að þeir hafi tekið eftir framtaki mínu og jafnvel hugsað sig um stundarkorn – í stað þess að fleygja snjó er hægt að fleygja brauði! Athöfnin er svipuð – þeir geta haft gaman af því að henda hlutum í endur (án þess að miða beint á þær) og endurnar kynnu eflaust að meta það betur en boltana (þær eru umkringdar snjó hvort eð er).

Strákarnir voru komnir í hvarf áður en alvöru lætin byrjuðu. Ég var með brauðið sneitt í poka og ætlaði mér að rífa einn bita í einu, eins og venjan er – en réði engan veginn við eftirspurnina. Áður en ég vissi af var ég umkringdur öndum, svönum og gæsum sem komu hvaðanæva að. Straumurinn var endalaus! Ég neyddist til að flýja af hólmi, setjast niður á bekk við Lækjargötu og búta brauðið sundur í rólegheitum. Því næst sneri ég aftur á vígvöllinn. Ég var ekki einn á svæðinu. Þarna var kona að taka ljósmyndir af fuglunum (ekki að gefa brauð) og maður með barn (sem var að gefa brauð). Fuglarnir voru svo sársvangir að það var ómögulegt að ráða við hópinn. Ég sem reyni gjarnan að gefa hverjum fugli jafnt gat ekki annað en sturtað úr pokanum yfir fuglaþvöguna og látið mig hverfa.

Ég nefndi þetta við móður mína sem sagði mér að hún hefði gengið fram á svan stuttu áður og fylgst með honum reisa sig hátt og blaka vængjunum. Undir tignarlegu yfirborði var hægt að telja í honum beinin. Því spyr ég: hvaða furðulegi misskilningur hefur valdið því að borgarbúar gefa öndunum aðeins á sumrin, þegar þær hafa það ágætt hvort eð er, en láta þær svelta á veturna? Og hvers vegna fer fullorðið fólk aðeins niður að Tjörn þegar börn eru með í för? Hér er eitthvað dularfullt á ferð. Við ættum að hrósa happi yfir því að fuglarnir nenni að hanga hér á rassgatinu Íslandi yfir vetrartímann – það er hinn mesti misskilningur hjá þeim að fljúga ekki eitthvað annað (þeir halda að sjálfsögðu að hér sé til nóg að borða eftir allar ríkulegu sumarmáltíðirnar). En svo er ekki. Þeir eru skraut til að fegra miðbæinn fyrir smáborgarbúa til að dást að á góðviðrisdögum. Hina dagana geta þeir að mestu leyti átt sig.

Stuttu síðar hélt ég matarboð sem endaði með ferð niður í miðbæ. Áður en við héldum á ölhúsin að sturta peningum niður í drykkjuskap dró ég liðið niður að Tjörn með nokkra poka af brauði. Okkur var tekið fagnandi og færri komust að en vildu. Síðan kom í ljós að ekki höfðu allir gestirnir skilað sér – sumir fóru beina leið á barinn því að það er svo hallærislegt að gefa öndunum brauð. Það er fyrir börn, sérvitringa og gamalt fólk.


Saturday, March 4, 2006

Að loka eyrunum

Fyrir stuttu var ég staddur á rafhátíðinni Sonic Acts sem er haldin árlega í Amsterdam. Hátíðin samanstóð af tölvumyndlist, fyrirlestrum og tónleikum þar sem raftónlist var í fyrirrúmi. Fyrsta kvöldið var tileinkað tölvumyndlist þar sem fjallað var sögulega um tilurð og þróun tölvulistar og verk tveggja listahópa voru sýnd. Þau samanstóðu af tölvugerðum hreyfimyndum á risaskjá með fylgjandi raf(ó)hljóðum.

Ástæðan fyrir því að ég minnist á þessa hátíð er að þarna sat ég ásamt Helgu Björg kærustunni minni og upplifði tilraunaverkið AREAL eftir hópinn Granular Synthesis. Í örfáum orðum hófust lætin með naumhyggju – einfalt myndrænt form byggt á láréttri línu og látlaust rafrænt suð. Hægt og rólega tók listaverkið að eflast – línan tók að stækka og verða bjartari þar til hún endaði sem risastórt leifturljós sem réðst á áhorfendur með mestu árásargirnd í von um að senda sem flesta í flogaveikiskast. Hljóðið þróaðist á sama hátt frá einföldu suði til slíkrar hátíðni að hver einasti hundur í borginni hefur fundið fyrir áhrifunum – og bassinn varð nógu sterkur til að mauka innyflin og koma hjartslættinum í óreglu. Við sátum á öðrum bekk með engan fyrir framan okkur – alltof nálægt hægri hátalarastæðunni – og vorum því á besta stað til að upplifa ágengni verksins til fullnustu. Ég var fljótur að loka augunum og líta undan því ég gat ekki einbeitt mér að skjánum lengi í einu. Gróflega áætlað eyddi ég líklega helmingi tímans á flótta undan yfirþyrmandi margmiðlunarlistinni – án þess að nokkurn tímann yfirgefa sætið mitt. Verkið stóð yfir í áttatíu mínútur.

Helga gafst ekki jafnauðveldlega upp. Hún vildi alls ekki bugast undir vilja listahópsins, hvers takmark var bersýnilega að ganga fram af áhorfendum af öllum mætti. Hún píndi sig af öllum kröftum langt fram undir síðari hluta verksins en neyddist að lokum til að fela sig á bak við augnlokin líkt og auminginn við hlið hennar (sem rennir stoðum undir þær kenningar að kvenmenn búi yfir hærri sársaukaþröskuldi en karlmenn). Eftir að þrekraun okkar lauk vorum við bæði úrvinda á sál og líkama og þrátt fyrir blendnar tilfinningar gagnvart listaverkinu gátum við ekki annað en fyllst ákveðinni hrifningu. Þetta minnti einfaldlega á pyntingar og við höfðum setið undir þeim sjálfviljug. Það var ekkert Clockwork Orange-tæki sem hélt augunum opnum – þeim gátum við lokað (en píndum okkur engu að síður til að kíkja af og til). Hins vegar minnti atvikið mig á að þó við getum gjarnan lokað augunum getum við aldrei lokað eyrunum. Það er ekki af ástæðulausu að hljóð skiptir gríðarlegu máli í hryllingsmyndum og að í mörgum eftirminnilegum ofbeldisatriðum er subbuskapurinn utan rammans og hljóðið í fyrirrúmi. Áhorfendur geta auðveldlega útilokað hið sjónræna en hljóðið smýgur alltaf í gegn nema flúið sé af vettvangi (og það er ekkert hryllilegra en hljóð án sýnilegrar uppsprettu).

Jafnvel eftir að við höfðum bæði litið undan þurftum við enn að þola óhljóðin – hátíðni, skruðninga og bassa – af slíkum styrkleika að líkja mætti við líkamlegt ofbeldi. Velta má vöngum yfir því hvers vegna við og allur áhorfendahópurinn létum okkur hafa það að sitja undir þvílíkri nauðgun á skilningarvitunum – var það virðing gagnvart listforminu, stríðandi þrjóska gagnvart áætlun listahópsins eða úrkynjuð útrás bældrar samúðar og ómeðvitaðrar sektarkenndar vegna þess að við þykjumst búa í velmegunarsamfélagi á meðan aðrar lífverur þurfa víða að þjást? Kannski fáum við bara ekki nógu oft tækifæri á að láta misþyrma okkur almennilega.

Friday, February 3, 2006

Painting With Film

Ritgerð úr námskeiðinu Art and Film við Háskólann í Amsterdam undir stjórn Dr. Sophie Berrebi.


Painting With Film


affective immediacy and temporal narrative in the cinema of David Lynch



Part I - Moving Paintings

Once upon a time David Lynch looked at one of his paintings – an almost all-black painting of a garden – when he suddenly heard the wind blowing. For a second he saw the painting move and got the idea of making a moving painting with accompanying sound. In 1967 he produced his first moving painting – Six Men Getting Sick (Six Times) – a minute long animated loop showing six figures vomiting, looped six times. Originally presented on a sculptured canvas, this painting would later become known as David Lynch’s first short film.

He made the painting for an experimental painting and sculpture contest at his school and consequently won first prize. One H. Barton Wasserman saw the piece of work, liked it, and commissioned another of the sort to be made by Lynch for his private collection. Lynch got some money, bought his first camera and after one failed experiment he finally produced his second moving painting, The Alphabet (1968), with funding from Wasserman. The painting incorporated real-life acting mixed together with animated sequences and told the story of a young girl’s nightmare about the letters of the alphabet. Generally referred to as Lynch’s second short film, The Alphabet strays further from the path of painting towards a more general narrative. This would become more clear in Lynch’s next “short film”, The Grandmother (1970), which is the longest of his shorts (around thirty-four minutes long). Even though it has animated parts the film generally revolves around real-life actors and set pieces, focusing on a young boy and his un-loving parents. Out of loneliness he grows a grandmother from a seed in his room in search of friendship in a cold dark world. The Grandmother is in many ways a precursor to 1977’s Eraserhead, and although neither one are best remembered for their narrative elements – the films stray far off the beaten path of classical Hollywood narrative and hold up mostly because of style and atmosphere – when compared to his earlier shorts it remains obvious that Lynch has come a long way from his original projections on canvas and into the world of cinema – a step that became finally clear with his first studio production, The Elephant Man, in 1980.

Lynch was not trained as a filmmaker, but as a painter at the Pennsylvania Academy of Fine Arts. In addition to painting and film he has participated in numerous other art projects in recent years, including writing, photography, animation, music, sculpting and printmaking, all of which would be interesting subjects of research – but I am only focusing on his career as a filmmaker and painter. What had originally been combined in his early shorts – or moving paintings – has become seperated into two different mediums. As his film career progressed he never gave up painting on the side, although most people know him because of his filmic work rather than his paintings. In this short essay I intend to elaborate briefly on certain elements that cause this seperation – and try to connect them back together in search of further understanding on how the films of David Lynch should be examined. By using a concrete example of a filmmaker like Lynch I hope to bring to light some basic assumptions about the relationship between the art of painting and the art of film in the process.



Still images from Six Men Getting Sick (Six Times) (1967) and The Alphabet (1968).


Part II - Temporal Dimensions

Edward Hopper is another guy I love, but more for cinema than for painting. Instantly, when you see those works, you dream.

- David Lynch[1]


One of the main differences between a painting and a piece of film is the illusion of movement. Even though both mediums can employ this illusion it is not as self-evident in the case of film as it is with painting – it is only through human perception that the twenty-four still frames of each second of a film sequence can be translated as actual motion. Through this illusion comes the element of time – the temporal dimension of a moving picture, be it a self-evident still image of a painting or the perceptual illusion of film. When looking at a traditional film and comparing it to a traditional painting the major differentiating element seems to be the length – a film might go on for an hour and a half while the painting sits still within its own frame of reference. It might be argued that there are other differentiating elements, such as sound and “motion”, but I will bypass these in order to stay true to David Lynch’s original ideas of a moving painting, thus widening the traditional understanding of painting to include both sound and “motion”. I would rather focus on the fact that through length and time – through the stretching out of action – comes the essential structure for narrative development.

As a representative of the temporal dimension in painting I would like to discuss briefly the work of Edward Hopper, where the element of time is a key feature. Hopper is one of Lynch’s two all time favorite painters – the other one being Francis Bacon – and I would like to juxtapose the two artists as being symbolic for two different sides of the relationship between film and painting, where Hopper stands for the dimension of time – how a painting can become cinematic and how a film becomes narrative – and Bacon for the plane of immediacy – how a dissolution of narrative can bring a film to a plane normally reserved for painting.

Hopper’s work is generally regarded as being highly cinematic and even though he never directly worked on any films his connection to the world of cinema is well known. He has been influential on various filmmakers through the years, the most famous examples being on post-war film noir, Alfred Hitchcock (the Bates motel in Psycho (1960) was based on a Hopper painting) and numerous Wim Wenders films. The cinematic quality of Hopper’s work has been neatly defined by Wenders who believes that each painting can be expanded into imaginary sequences because the viewer imagines a “before” and “after” to each still scene, thereby implying not only movement but also an added temporal dimension to the painting’s setting. In his article, “Two or Three Things I Know About Edward Hopper”, Peter Wollen writes that

Hopper’s tableaux thus contain a temporal dimension which, in each viewer’s mind, could be vitalised and set in motion. [...] His paintings of buildings are like still photographs, mostly uninhabited. Looking at these buildings the viewer inevitably begins to wonder who is living in the house, to hypothesise about who might have left and who might be arriving. Perhaps Wim Wenders was right to suggest that Hopper’s paintings invite us to imagine a “before” and an “after”, to speculate on who inhabits the buildings, what goes on inside them, but also what has happened in them in the past and what might occur in the future.[2

If we can assume that through the temporal dimension the illusion of narrative is born in the example of Edward Hopper – what has been referred to as the “cinematic” quality to his work – then it can be argued that therein lies a seperation – or overlap – between the medium of painting and film. With the introduction of narrative the temporal dimension is expanded to include outside elements. The viewer does not experience the work in isolation but as part of a narrative space that surrounds it. In this way a painting can be said to become cinematic – it moves beyond its own frame to refer to imaginary settings, to imaginary times – or as David Lynch puts it: “Instantly, when you see those works, you dream.”[3]


Photograph by Donata Wenders from the set of Wim Wenders’ The End of Violence (1997) and Edward Hopper’s Nighthawks (1942).


Part III - Narrative Dissolutions

Rodley: Bacon’s paintings often imply a narrative, but it’s unclear excactly what is going on. Does that interest you?

Lynch: Exactly right. Fragments of narrative.

If Bacon had made a movie, what would it have been and where would it have gone ? And how would the cinema translate those textures and those spaces ?

Lynch on Lynch[4]

If it is through narrative that a seperation takes place between a film and a painting it is through the dissolution – or even utter destruction – of narrative that painting and film can be reunited. To paraphrase, if the difference between painting and film lies within the temporal dimension it is on the plane of immediacy where the roles can be reversed and film can take on the quality of a painting, not vice versa. This can be argued in the case of David Lynch through a reading of his other favorite painter, Francis Bacon.

To clarify what I mean by a plane of immediacy I will refer to the work of cultural theorist dr. Greg Hainge, who has written on the relationship between David Lynch (using Lost Highway (1997) as a case study) and Francis Bacon through Gilles Deleuze’s analysis of Bacon’s work. Hainge argues that the similarities between Bacon and Lynch go far beyond a mere coincidence of visual elements and that the aesthetic processes and affective intent of Lynch’s film can be intimately linked to Bacon as analyzed by Deleuze. Discussing his reading of Bacon’s work as an art of sensation, Hainge refers to Deleuze’s dubbing of the “Figural Process”, where every element in a painting conspires to isolate a primary “Figure” – the isolation of the Figure from its surroundings breaks all notion of representation, narration or illustration and the space that the Figure inhabits is no longer a narrative space, but merely the space of the painting in which the figure inhabiting that space becomes merely an image or an icon. Citing Deleuze’s analysis, Hainge writes that

having undergone this process, the Figure releases centrifugal forces as it attempts to escape itself through its very organs in a spasmodic movement so as to fade into the background, the very materiality of the painting. The effect of this, of course, is to further the narrative dissolution and thus intensify the pure immanence of the painting which is thus able to bypass the reflective mechanisms of mind and intellect to act directly on the spectator’s emotive core on a plane of immediacy.[5]

This idea is the focal point of Hainge’s article, “Weird or Loopy? Specular Spaces, Feedback and Artifice in Lost Highway’s Aesthetics of Sensation”, where he argues that in Lost Highway David Lynch is breaking the narrative convention in a way similar to Deleuze’s writing on the “Figural Process” in the work of Francis Bacon. Through the dissolution of narrative structure the immanence of the cinematic image becomes central and the temporal dimension becomes secondary. In this case the temporal dimension is the narrative structure that needs elements of time and longevity to become affective through the mechanisms of mind and intellect. Instead the affect of the immediate image becomes primary and works as a direct art of sensation. The image breaks free of its surrounding narrative space – of the mechanisms of mind and intellect – and refers only to its isolated self in order to plunge straight into the spectator’s emotive core. Hainge argues that through this sort of filmic expression Lynch is employing a technique normally reserved for painting – thus creating a theoretical bridge between Lynch the filmmaker and Lynch the painter.











Francis Bacon’s Head IV (1949) and a Baconian still image from Lost Highway (1997).


Part IV - The Filmmaker and The Painter

In the beginning, painting and film were combined in the work of David Lynch. Somewhere along the way the two mediums became seperated – at least on the surface of things – and I believe that Hainge’s idea of immediacy is one way of discussing how structural remnants of painting still exist in Lynch’s filmic works. It is up for grabs for further discussion to examine how many cinematic qualities can be found in his paintings – but that shall not be done in the short span of this essay. Rather I would like to draw attention to the middle ground between the two opposites that I have already put forth – being the narrative ground (represented by Hopper and the temporal dimension) and the non-narrative ground (represented by Bacon and the plane of immediacy). This is where the cinema of David Lynch is situated and thus an area where any discussion of his films must take place.

When looking at his bulk of early work it is apparent how narrative slowly takes over the original painting and the need to tell a story is in constant dialogue with the need to produce immediate images. Lynch has himself stressed on many accounts the influence of practicing transcendental meditiation and emphasized the bypassing of the conscious intellect as a key element to experiencing his work. His films are often referred to by critics and viewers alike as being illegible and “weird” and it will be an odd day in film history when his films will be considered to be a part of mainstream cinema. This goes to show that his films can not be evaluated by traditional “Hollywood” standards. When looking at the filmic works of Lynch one must realize that he is working in a very gray area – in a strange and wonderful limbo between two traditional mediums – and that is the reason why audiences can have problems with their viewing pleasures. Even though the immediate image never fully takes over the narrative – not to the extent of his early shorts – it can become very confusing for a viewer to focus entirely on a narrative as a sort of life-preserver to hang on to, hoping for some kind of understanding or explanation. In fact, to fully understand the experience of watching a Lynchian film the aesthetics of painting and the affective immediacy of an art of sensation must be considered as key factors.

I am aware that I am now getting dangerously close to surrealist territory – in particular when thinking about Lynch’s tendency to bypass the conscious and blame everything on transcendental or subconscious imagery – and I will attempt to sidestep that area as best I can as I follow up with a discussion about David Lynch’s mode of production in his upcoming film, Inland Empire. Even though many parts of it sound reminiscent of free association, automatic painting or other elements generally seen as part of the surrealist tradition, I believe that in its essence this mode of film production has more to do with the solitary act of painting than traditional filmmaking, be it surrealist or otherwise. In an interview with Variety about his new film, posted on May 11, 2005, Lynch explains his newfound love with digital video:

"For me, there's no way back to film. I'm done with it," Lynch says. "I love abstraction. Film is a beautiful medium, but it's very slow and you don't get a chance to try a lot of different things. With DV, you get those chances. And in post-production, if you can think it, you can do it."[6]

He had begun working with digital video for his website, DavidLynch.Com, and admits to having fallen in love with the medium because of the freedom it allows and the different possibilities it affords, both during shooting and working in post-production. I believe that this brings a whole new dimension to my discussion of immediacy in Lynch’s work as it sounds to me that this is in fact not David Lynch the filmmaker speaking, but rather his painter alter ego. Without having seen the new film – without needing to see the film – I am basing my opinion only on the writings on its mode of production. Nevertheless, I am ready to argue that in the case of David Lynch and digital video the artist may have come full circle – theoretically speaking – and reduced his double life as an artist back to the single hybrid state of making a moving painting.

I hope to have already shown that there are definite connections to be found linking the structural and formal qualities of painting within the films of David Lynch – that despite the fact that he gave up making “literal” moving paintings a long time ago the concept still exists, though in a different way, within his particular cinematic style. Through the constant battle between narrative and “subconscious” imagery Lynch mixes up traditional boundaries and is able to bring a film to planes normally reserved for painting. But with the introduction of digital video there is another step taking place. It is interesting to note that Lynch speaks of freedom when referring to digital video – like he has been freed from the restrictions of using film (and the submerged painter alter ego can finally roam free within the realm of cinema!). Obviously, film is an expensive medium and when using it every shot must be carefully planned in order for it not to be wasted, but with digital video that is never a problem. This gives way to more space for improvisation and experimentation – the freedom that Lynch speaks so fondly of. He even goes so far as to mention the time it takes to reload the film in the camera as being disruptive to the process of shooting: “When you run out of film, you have to stop and reload, and during that time the heat sometimes goes off. But with this medium you can keep that heat, and it builds, and it’s beautiful to see.”[7]

With digital video Lynch never has to stop and reload – he can change things as he goes along (he was writing the film as he was shooting it) and with the added possibilites of post-production he can keep on experimenting. I propose to juxtapose this with an image of David Lynch the painter, working in his studio – with his big canvas and his paintbrush, working spontaneously and carefully adding in the details later. The digital camera can be seen as equal to the brush and through computer technology the canvas can be expanded and changed to the director’s liking throughout the whole creative process. There are numerous overlaps between the art of painting and the art of film and I believe to have touched upon some of them in this essay, albeit rather abruptly – there is obviously a lot more work to be done on the subject, in particular with the advancing new technologies of digital filmmaking. The elements of time and narrative and the elements of immediate imagery (at the cost of narrative) are examples of theoretical overlaps, regarding the structure and form of the different mediums. Alternatively, the examples of Lynch’s early moving paintings are very obvious and literal overlaps between cinema and painting (and even sculpture) and it can be argued that through the use of digital video another literal transformation is taking place – that we are entering a higher plane of painting with digital technology instead of brushes and paint to such an extent that it seems impossible to speak of “films” anymore – and “movies” suddenly becomes a better choice of words.


BIBLIOGRAPHY

DavidLynch.com. Website [last accessed: 03.02.2006]: http://www.davidlynch.com/. DavidLynch.com, 2005.

Dawtrey, Adam. “Lynch Invades an Empire. Digital Pic Details a Mystery”, Variety.com. Variety Magazine Online. Posted: Wed., May 11, 2005, 5:10pm PT. Website [last accessed: 03.02.2006]: http://www.variety.com/index.asp?layout=cannes2005&content=story&articleid=VR1117922566. Reed Business Information, 2006.

Hainge, Greg. “Weird or Loopy? Specular Spaces, Feedback and Artifice in Lost Highway’s Aesthetics of Sensation”, The Cinema of David Lynch. American Dreams, Nightmare Visions. Edited by Erica Sheen and Annette Davison. London, Wallflower Press, 2005, pp. 136-150.

Harrison, Martin. In Camera. Francis Bacon: Photography, Film and the Practice of Painting. [London], Thames & Hudson, 2005.

Lynch on Lynch. Revised Edition. Edited by Chris Rodley. London, Faber and Faber, 2005.

The Short Films of David Lynch. Directed by David Lynch. DVD version, DavidLynch.com, 2002.

Wollen, Peter. “Two or Three Things I Know About Edward Hopper”, Edward Hopper. Edited by Sheena Wagstaff. London, Tate Publishing, 2004, pp. 68-81.


[1] Lynch on Lynch. Revised Edition, p. 17.

[2] Wollen, Peter. “Two or Three Things I Know About Edward Hopper”, pp. 78-79.

[3] Lynch on Lynch. Revised Edition, p. 17.

[4] Lynch on Lynch. Revised Edition, p. 17.

[5] Hainge, Greg. “Weird or Loopy? Specular Spaces, Feedback and Artifice in Lost Highway’s Aesthetics of Sensation”, p. 141.

[6] Dawtrey, Adam. “Lynch Invades an Empire. Digital Pic Details a Mystery”. Website.

[7] Dawtrey, Adam. “Lynch Invades an Empire. Digital Pic Details a Mystery”. Website.