Verandi safn greina, sagna og hugleiðinga sem ælt hefur verið út um hvippinn og hvappinn.

Saturday, June 9, 2007

Minningarorð um kött

Ein fallegasta kisa sem ég hef nokkurn tímann kynnst var að deyja. Ég veit ekki hvað hún hét, en kallaði hana alltaf Lubbu í höfuðið á Lobba bróður hennar og Loðbrandi stjúpafa hennar. Hún fæddist seinasta haust og dó í byrjun sumars. Ég hef búið með köttum alla mína ævi og hef gengið í gegnum lífshlaup þeirra áður. Tveir gamlir kettir eru grafnir úti í garði. Það var erfitt að takast á við dauðsföll þeirra beggja, en engu að síður mátti finna huggun í því að þau lifðu bæði vel og lengi. Ég hef líka grafið kettlinga í garðinum. Þeir fengu ekki að upplifa neitt, heldur fæddust andvana og því lítið hægt að velta fyrir sér örlögum þeirra. Ég hef hins vegar aldrei áður upplifað dauða kattar sem var þarna mitt á milli, nýbúinn að taka fyrstu skrefin í lífinu og rétt farinn að rúlla af stað.

Lubba litla var dóttir Hnoðru, kisunnar hjá mömmu og pabba, og ég fann fyrir miklum tengslum við hana vegna þess að ég tók á móti henni við fæðingu. Það hef ég aldrei gert áður og sú lífsreynsla er ofarlega á lista yfir þær mögnuðustu hingað til. Elsti kettlingurinn í gotinu dó og það var mikil gleði þegar systkinin þrjú komust heil á húfi í heiminn. Ég fylgdist með þeim vaxa og styrkjast, sá persónuleikana koma í ljós á ólíka vegu og kynntist þeim öllum náið. Þegar þau voru orðin nægilega sjálfstæð voru þau gefin og allir kettlingarnir enduðu innan ættarinnar. Lubba litla var algjör bolla, kafloðin og silkimjúk, ættuð af persakyni í aðra ættina en óvíst var um faðernið. Ég held ég hafi séð pabba hennar einu sinni á göngu í götunni heima. Hann starði heillengi á mig eins og hann vissi að ég hefði tekið á móti börnunum hans. Sá köttur er loðinn líka, með íkornaskott eins og afkvæmin þrjú. Mamman er af dvergakyni en pabbinn ekki. Börnin sem eftir lifa stefna í að verða stærri og loðnari en mamma þeirra.

Ég fékk aðeins tækifæri á að hitta Lubbu einu sinni eftir að hún flutti að heiman og ég er ánægður með það. Ég held að hún hafi munað eftir mér. Hún kom til mín og var ófeimin, en hún forðaðist iðulega ókunnuga. Þegar hún var kettlingakríli hagaði hún sér eins. Hún var alltaf svolítið hrædd við mannfólk og leið best í fanginu á mömmu sinni eða þegar hún kúrði sig niður í hrúgu með systkinunum. Þá var hún sallaróleg og það skipti engu máli hvernig bróðir hennar og systir slógust allt í kringum hana eða klóruðu hana og bitu til að draga hana með í leikinn – hún svaf bara og slakaði á í öllum látunum. Hún var alltaf frekar lítil í sér og við vissum að hún þyrfti að komast á gott heimili. Hún komst í vist hjá yndislegu fólki og þegar ég kom til þeirra í heimsókn og hitti Lubbu fullorðna í þetta eina skipti sá ég að hún var orðin mjög sjálfstæð. Hún réði sér sjálf og fékk að fara út í garð eins og hana lysti, enda var hún alltaf úti að leika sér. Ég man eftir að hafa hugsað hvað hún hefði það gott að búa á jarðhæð í svona rólegu hverfi, ég sá ekki betur. En sumir bílar keyra hratt, meiraðsegja í rólegum íbúðarhverfum. Ég minnist þess eitt sinn þegar ég sat í bíl með félaga mínum og hann brunaði niður götuna mína að skutla mér heim. Ég lét hann heyra það og skammaði hann fyrir hugsunarleysið. Það á aldrei að keyra hratt í götum þar sem kisur búa, sagði ég og hann sá strax hlutina í nýju ljósi. Hann hafði einfaldlega ekki hugsað út í það áður, enda aldrei búið með köttum. Síðan þá passar hann sig alltaf. Þess vegna rita ég þessi minningarorð um Lubbu litlu sem er sárt saknað og vona að lesendur hugsi hlýlega til kattanna þegar þeir bruna næst niður göturnar.

Saturday, February 24, 2007

Mávagrátur

Ég hef búið í miðbæ Reykjavíkur síðan ég var strákur en hafði aldrei hugsað út í dúfurnar fyrr en ég flutti heim eftir ársdvöl í Amsterdam. Þar eru dúfur úti um allt, líkt og í mörgum stórborgum – “fljúgandi rottur,” eins og sumir kjósa að kalla þær. Ég tengdi aldrei dúfur við Reykjavík fyrr en ég rakst nýlega á eina þeirra á vappi við Austurvöll að leita sér matar og fór að íhuga málið betur. Ég hef séð hana á sama stað af og til eftir það. Líklega er hreiður þarna nálægt, eitt af fáum sem enn finnast í miðborginni. Þá kviknaði á fjarlægu ljósi í hausnum og ég mundi óljóst eftir nokkru sem ég átti að vita vel. Ég las mér til um dúfnaherferðir síðustu ára og áratuga og rifjaði upp hvernig dúfurnar höfðu hrellt borgarbúa af slíkum krafti að þær kölluðu yfir sig skipulagða útrýmingu. Árið 2003 voru þær loksins friðaðar og teknar af lista yfir meindýr, einfaldlega vegna þess að það var búið að drepa þær reglubundið í næstum hálfa öld og stofninn hafði minnkað eftir því. Þannig leystum við dúfnavandamálið mikla. Þetta eru svo sem ekki nýjar fréttir, en ágætt að minna á það af og til hvernig heil fuglategund getur verið kúguð og ofsótt til þess eins að friða borgarbúa. Hvernig fara aðrar þjóðir eiginlega að því að lifa með öllum þessum dúfum?

En dúfurnar eru ekki eina fuglategundin sem hefur fengið dauðarefsinguna fyrir það að valda Reykvíkingum ónæði. Máfarnir hafa löngum orðið fyrir aðkasti. Skemmst er að minnast stríðsyfirlýsinga borgaryfirvalda á síðasta ári, þar sem máfum var kennt um að vera með læti við Tjörnina og éta allt frá öndunum. Það er ekkert leyndarmál að fuglavarp á Tjörninni í fyrra gekk mjög illa – aðeins grágæsirnar komu upp ungum sínum áfallalítið, samkvæmt nýlegri skýrslu um fuglalíf Tjarnarinnar eftir Ólaf K. Nielsen og Jóhann Óla Hilmarsson. Það er heldur ekkert leyndarmál að sílamáfar drápu unga. En í stað þess að reyna að komast að rót vandamálsins og leita að framtíðarlausn var sílamáfurinn gerður að sökudólgi – nánast að harðsvíruðum morðingja – og ákveðið að gefa út skotleyfi á tegundina, þrátt fyrir að í vopnalögum komi skýrt fram að bannað sé að hleypa af skotvopni innan borgarmarka nema nauðsyn krefji. En þetta var ekkert minna en neyðartilfelli. Það var bráðnauðsynlegt að bjarga öllum ungunum með því að drepa aðra fugla í staðinn. Andarungar eru nefnilega miklu sætari en máfar. Þeir eiga því meiri rétt til lífs. Fegurð og glæsileiki eru stóratriði þegar við kemur lífi og dauða. Alveg eins og margir neita að borða hesta, hvali og hreindýr en háma í sig kýr, svín og lömb. Máfarnir eru háværir og fara gjarnan í taugarnar á fólki. Þess vegna var auðvelt að kenna þeim um ástandið á Tjörninni og þess vegna er allt í lagi að skjóta þá. Ef það væru endurnar sem verið væri að skjóta myndu hávær mótmæli fuglavina loksins fá að óma í borginni.

Sagt var að máfarnir væru komnir of langt inn á svæði manna, en hvort kom mannfólk eða fuglar fyrst til landsins? Og hvers vegna eru þeir að sækja á ný mið? Þar liggur rót vandans. Mávarnir svelta, rétt eins og endurnar. Þess vegna hafa þeir orðið sífellt ágengnari. Þeir sem komast ekki lengur í mat við höfnina neyðast til að færa út kvíarnar. Hvers vegna ekki að lokka máfinn burt með matargjöfum? Við sem hendum ógrynni af mat í ruslið ættum að geta safnað saman í hauga fyrir fugla að éta. Máfarnir gætu sótt þangað í leifar frá öllum fínustu veitingahúsum borgarinnar. Matargjafir, samúð, ást og hjálp er það sem þarf – ekki tilgangslaus útrýming – því byssukúlur seðja ekki hungrið.

Saturday, January 6, 2007

Al-íslenskt stríð

Það líða ekki áramót án þess að ég lesi um eitthvað vesalings hross sem tryllist og þýtur á rás út í rauðan dauðann. Gamlárskvöld er versta hryllingskvöld ársins fyrir dýrin, sem skynja langt út fyrir mannleg eyru. Hvað ætli margir fuglar drepist á hverju ári, eða hvernig ætli ástandið sé niðri á Tjörn um miðnætti? Sjálfur ólst ég upp með köttum og hef því upplifað einlægan ótta taka sér bólfestu í þeim um leið og sprengingarnar byrja. Lætin dreifa sífellt úr sér, ekki aðeins á áramótunum sjálfum heldur alla daga þar um kring. En gamlárskvöld er langsamlega verst og þegar nær dregur miðnætti þarf að róa niður kettina og sýna þeim samstöðu. Skríða undir borð til þeirra og veita þeim félagsskap. Í ár var óvenjumikið sprengt, sumir tala um mengunarmet (hvort sem átt er við reyk- eða hljóðmengun), en það fór nánast framhjá mér. Heima var dregið fyrir alla glugga og músík sett á fóninn til að mynda verndarskjöld, þótt veikbyggður væri. Á miðnætti drógum við aðeins frá stofuglugganum til að sjá stærstu flugeldana, svona rétt til að halda í hefðina, en að því undanskildu sprengdi ég ekkert og var nokk sama.

Þegar ég var strákur fannst mér gamlárskvöld heillandi, líkt og flestum börnum. Mér finnst enn gaman að sjá flugelda, ég neita því ekki, en áhuginn og sjarminn er löngu horfinn. Gamlárskvöld hefur breyst í slíka ofgnótt af látum og brjálæði að það sem var eitt sinn heillandi er orðið yfirgengilegt og pirrandi. Ég hef eytt áramótum erlendis þar sem fólk var samankomið hér og þar um bæinn á miðnætti til að fylgjast með glæsilegum flugeldasýningum. Þar voru allir afar kátir og nutu þess til fullnustu að sjá ljósadýrðina. Ég myndi miklu frekar vilja sjá skipulagðar flugeldasýningar á áramótum heldur en stríðslætin í borgarbúum sem vilja allir sprengja burt árið með betri og flottari tertum en nágrannarnir. Slíkar sýningar myndu vissulega hræða dýrin að eitthverju leyti, hjá því verður ekki komist, en áfallið væri þeim mun minna. Lætin væru ekki jafnmikil í einu og ekki dreifð yfir jafnlangt tímabil.

Þeir sem skilja hvað um er að ræða þegar ég tala um dýrahræðslu geta varla haft í sér að sprengja mikið. Ég vildi óska að það væri nóg að þekkja dýr til að skilja óttann, en svo er ekki. Ég hef gengið upp í brjálæðið á Landakotstúni og komið að hundi læstum inni í bíl, geltandi eins og hann ætti lífið að leysa. Hvers lags hundaeiganda getur dottið í hug að taka dýrið með á flugeldasýningu? Margir vilja trúa því að þetta eldist af dýrum, að þau venjist látunum með árunum, en svo virðist ekki vera. Þetta er innbyggt í náttúrueðlið og alltaf jafntryllandi. Ég eyddi áramótunum með fullorðinni kisu og kettlingnum hennar, sem var að upplifa þetta í fyrsta skipti. Þau voru bæði jafnhrædd. Auk þess hitti ég fyrir gamlan hund sem hefur margoft upplifað gamlárskvöld, en hafði látið eins og hvolpur allt kvöldið og var við barm taugaáfalls. Næsta ár þarf líklega að gefa honum róandi. Svo virðist sem meirihluti borgarbúa íhugi ekki þessi mál, eða láti þau sem vind um eyru þjóta, líkt og er með dýr á stríðshrjáðum svæðum. Fáir hugsa út í þau, en á seinasta ári hefur til dæmis verið í gangi hjálparstarf í Líbanon og Ísrael til að bjarga og aðstoða dýrin sem upplifðu hörmungarnar, þótt sjaldan sé á það minnst í fréttum. Það er algengt að líkja íslenskum áramótafögnuði við stríð, með tilheyrandi skothríð, en það er sjaldgæft að fólk viðurkenni að þessu ímyndunarstríði fylgja árlega raunveruleg fórnarlömb, hvort sem það eru kettir, hundar, fuglar eða hestar.