Á kvikmyndahátíð sem stóð yfir fyrr á árinu kom óháði kvikmyndagerðarmaðurinn Lloyd Kaufman til landsins og sýndi nokkrar myndir frá kvikmyndaverinu Troma. Þeirra á meðal var Terror Firmer, harkaleg og kaldhæðnisleg árás á ritskoðun í listum og vaxandi áhrif Hollywood kvikmyndarinnar á framleiðendur um allan heim. En líkt og gjarnt er með kvikmyndir Troma er ádeilan falin á bak við subbulegan b-mynda hrylling og dónaskap og því eiga þær ekki upp á pallborðið hjá hvaða áhorfanda sem er.
Kaufman sjálfur spjallaði við áhorfendur eftir sýninguna og vísaði til greinasafns sem finna má á heimasíðu Troma-versins. Þar má lesa skrif Kaufmans um þau vandræði sem listsköpun Troma hefur gengið í gegnum síðustu ár þar sem stórkeðjurnar sem stýra nær öllu skemmtiefni vestanhafs hafa sniðgengið og útilokað Troma-myndir frá meginstraumnum. Þær komast ekki lengur í sjónvarpið og sjaldnast inn á hvíta tjaldið. Kaufman tekur sem dæmi að árið 1980 hafi slæm Troma mynd (Waitress!) verið sýnd í 92 kvikmyndahúsum í New York borg en nú á dögum hafi fyrirtækið þurft að berjast fyrir því að fá Terror Firmer – mun betri kvikmynd – sýnda í einu kvikmyndahúsi í sömu borg. Nú lifir Troma á dreifingaraðilum utan Bandaríkjanna og með sölu á DVD beint í æð til aðdáenda á vefnum.
Kaufman hefur skrifað töluvert um einokunarveldi fjölmiðlarisanna vestanhafs og tekur ákveðin fyrirtæki sem dæmi um kvikmyndahúsakeðjur sem hafa farið á hausinn þar sem þær hafa dælt peningum í að byggja glæsileg kvikmyndahús en sýna ekkert nema sömu myndirnar og allar hinar keðjurnar – jafnvel sömu stórmyndirnar á mörgum tjöldum. Kaufman þykist sjá ástæðuna fyrir þessu og býður eftirfarandi lausn: í stað þess að troða Tom Cruise á tíu tjöld á að gefa honum eitt og sýna áhugaverðar, nýjar, óháðar eða erlendar kvikmyndir á hinum níu. „Frábæru myndirnar eru til staðar og bíða eftir að verða sýndar. Það þarf aðeins eina hugrakka keðju til að koma þeim í gang,“ ritar Kaufman í grein sinni „Hreðjalausar keðjur“ (www.troma.com/lk/chains).
Nú er kvikmyndahátíð búin að vera í gangi á Íslandi og mér verður alltaf hugsað til þessa orða Kaufmans þegar slíkur leikur er settur á svið og andstæðan við almenna bíósýningarskrá kemur í ljós. Hver gaf kvikmyndahúsunum leyfi til að taka þá ákvörðun fyrir okkur að við viljum aðeins horfa á „öðruvísi“ myndir en meginstraumsprógrammið býður upp á í nokkrar vikur á hverju ári? Það er nóg til af kvikmyndum sem fá aldrei að líta ljós sýningarvélanna í íslenskum kvikmyndahúsum vegna þess að eigendur þeirra standa í þeirri trú að enginn hafi áhuga. En ef þær stæðu til boða myndi fólkið fara að sjá þær. Ég vil ekki meina að allt sem komi frá Hollywood-maskínunni sé slæmt – nóg er til af frábærum meginstraumsmyndum – né heldur að allt sem komi að utan sé gott – nóg er til af rusli um alla veröld. En ég vil fá tækifæri til að upplifa meira en einhliða heim vestrænnar kvikmyndahefðar. Ég vil fjölbreytni í bíó. En öllu helst vil ég frelsi til að velja og hafna sjálfur án þess að aðrir taki fyrir mig ákvarðanir um hvað ég vil og hvað ég vil ekki sjá – því það er hreinræktuð ritskoðun.

No comments:
Post a Comment