Fyrir stuttu var ég staddur á rafhátíðinni Sonic Acts sem er haldin árlega í Amsterdam. Hátíðin samanstóð af tölvumyndlist, fyrirlestrum og tónleikum þar sem raftónlist var í fyrirrúmi. Fyrsta kvöldið var tileinkað tölvumyndlist þar sem fjallað var sögulega um tilurð og þróun tölvulistar og verk tveggja listahópa voru sýnd. Þau samanstóðu af tölvugerðum hreyfimyndum á risaskjá með fylgjandi raf(ó)hljóðum.
Ástæðan fyrir því að ég minnist á þessa hátíð er að þarna sat ég ásamt Helgu Björg kærustunni minni og upplifði tilraunaverkið AREAL eftir hópinn Granular Synthesis. Í örfáum orðum hófust lætin með naumhyggju – einfalt myndrænt form byggt á láréttri línu og látlaust rafrænt suð. Hægt og rólega tók listaverkið að eflast – línan tók að stækka og verða bjartari þar til hún endaði sem risastórt leifturljós sem réðst á áhorfendur með mestu árásargirnd í von um að senda sem flesta í flogaveikiskast. Hljóðið þróaðist á sama hátt frá einföldu suði til slíkrar hátíðni að hver einasti hundur í borginni hefur fundið fyrir áhrifunum – og bassinn varð nógu sterkur til að mauka innyflin og koma hjartslættinum í óreglu. Við sátum á öðrum bekk með engan fyrir framan okkur – alltof nálægt hægri hátalarastæðunni – og vorum því á besta stað til að upplifa ágengni verksins til fullnustu. Ég var fljótur að loka augunum og líta undan því ég gat ekki einbeitt mér að skjánum lengi í einu. Gróflega áætlað eyddi ég líklega helmingi tímans á flótta undan yfirþyrmandi margmiðlunarlistinni – án þess að nokkurn tímann yfirgefa sætið mitt. Verkið stóð yfir í áttatíu mínútur.
Helga gafst ekki jafnauðveldlega upp. Hún vildi alls ekki bugast undir vilja listahópsins, hvers takmark var bersýnilega að ganga fram af áhorfendum af öllum mætti. Hún píndi sig af öllum kröftum langt fram undir síðari hluta verksins en neyddist að lokum til að fela sig á bak við augnlokin líkt og auminginn við hlið hennar (sem rennir stoðum undir þær kenningar að kvenmenn búi yfir hærri sársaukaþröskuldi en karlmenn). Eftir að þrekraun okkar lauk vorum við bæði úrvinda á sál og líkama og þrátt fyrir blendnar tilfinningar gagnvart listaverkinu gátum við ekki annað en fyllst ákveðinni hrifningu. Þetta minnti einfaldlega á pyntingar og við höfðum setið undir þeim sjálfviljug. Það var ekkert Clockwork Orange-tæki sem hélt augunum opnum – þeim gátum við lokað (en píndum okkur engu að síður til að kíkja af og til). Hins vegar minnti atvikið mig á að þó við getum gjarnan lokað augunum getum við aldrei lokað eyrunum. Það er ekki af ástæðulausu að hljóð skiptir gríðarlegu máli í hryllingsmyndum og að í mörgum eftirminnilegum ofbeldisatriðum er subbuskapurinn utan rammans og hljóðið í fyrirrúmi. Áhorfendur geta auðveldlega útilokað hið sjónræna en hljóðið smýgur alltaf í gegn nema flúið sé af vettvangi (og það er ekkert hryllilegra en hljóð án sýnilegrar uppsprettu).

No comments:
Post a Comment