Nýlega kom upp mál í Bandaríkjunum sem fékk mig enn og aftur til að velta fyrir mér lyginni sem býr að baki hugtakinu “almenningsrými”. Orðið bendir til þess að um sé að ræða rými þar sem fólki er frjálst að tjá sig á almannafæri en sannleikurinn er að rýminu er stjórnað af ríkisvaldinu og hver samfélagsþegn verður að haga sér samkvæmt því. Gott og vel – það eru ákveðnar reglur sem almenningur hefur komið sér saman um og sumar þeirra eru ágætar (t.a.m. þær sem geta hindrað ofbeldi og skemmdarverk). Hins vegar er til bálkur af óskráðum reglum sem finnast ekki í neinum lögum. Þær kemst hver sá upp á kant við sem reynir að haga sér “óeðlilega” í almenningsrými.
Það er til einföld tilraun sem allir geta reynt – að klæða sig furðulega og halda að næsta samkomuplássi. Ég hef heyrt vitnisburð fólks sem hefur unnið við trúðsstörf á almannafæri og hann er gjarnan ófagur – svo virðist sem almenningur gefi sér veiðileyfi á hvern þann sem dirfist að klæðast slíkri vitleysu. Þetta brýst helst fram í munnlegum árásum. Eitt sinn var kærastan mín íklædd búningi á vegum Götuleikhússins úti á götu þar sem fjöldi bíla hægðu á sér svo farþegarnir gætu betur æpt meiðyrði að henni. Sú bitra lífsreynsla endaði með ljóðrænu réttlæti þegar einn ökumaður var of einbeittur við að æpa hástöfum “brenndu í helvíti!” til að hafa augu með umferðinni og klessti beint aftan á rassinn á bílnum fyrir framan. Enginn meiddist en nokkuð var um hlátur. Það er mikið til af sögum af fólki sem lendir upp á kant við almenning vegna óvanalegrar hegðunar án þess þó að brjóta nokkur lög. Í besta falli veldur slík hegðun aðeins hljóðlátu fussi og sveii en í versta falli getur hún leitt til líkamsárása – eða, líkt og í tilviki fimm ungra kvenna í Ohio, til handtöku og mögulegrar lögregluákæru.
Atvikið má rekja til vefsíðu á vegum náunga sem kallar sig “Poster Child” (www.qwantz.com/posterchild). Hann telur almenningsrýmið hafa verið yfirtekið af auglýsingum þar sem hvorki er pláss fyrir list né frjálsa tjáningu og öllu leyfilegu efni er miðlað í gegnum auglýsingastofur. Af því tilefni hefur hann hvatt alla samfélagsþegna til að sýna andstöðu í verki með því að koma fyrir eða setja upp spurningabox eins og voru í gömlu Super Mario Bros. tölvuleikjunum frá Nintendo – kassarnir sem hægt var að hoppa upp í og fá pening, svepp, stjörnu eða önnur “power-up”. Á síðunni má finna leiðbeiningar að því hvernig setja má saman slík box ásamt fjölda ljósmynda frá áhugasömum sem hafa hengt gripina upp um bæi hvarvetna um heim og fylgst með fólki fyllast undrun og gleði eða einfaldlega hringja í yfirvaldið og kvarta – því hvað annað er hægt að gera þegar maður gengur fram á eitthvað sem lagast ekki að vanafestunni?

No comments:
Post a Comment