Ein fallegasta kisa sem ég hef nokkurn tímann kynnst var að deyja. Ég veit ekki hvað hún hét, en kallaði hana alltaf Lubbu í höfuðið á Lobba bróður hennar og Loðbrandi stjúpafa hennar. Hún fæddist seinasta haust og dó í byrjun sumars. Ég hef búið með köttum alla mína ævi og hef gengið í gegnum lífshlaup þeirra áður. Tveir gamlir kettir eru grafnir úti í garði. Það var erfitt að takast á við dauðsföll þeirra beggja, en engu að síður mátti finna huggun í því að þau lifðu bæði vel og lengi. Ég hef líka grafið kettlinga í garðinum. Þeir fengu ekki að upplifa neitt, heldur fæddust andvana og því lítið hægt að velta fyrir sér örlögum þeirra. Ég hef hins vegar aldrei áður upplifað dauða kattar sem var þarna mitt á milli, nýbúinn að taka fyrstu skrefin í lífinu og rétt farinn að rúlla af stað.
Lubba litla var dóttir Hnoðru, kisunnar hjá mömmu og pabba, og ég fann fyrir miklum tengslum við hana vegna þess að ég tók á móti henni við fæðingu. Það hef ég aldrei gert áður og sú lífsreynsla er ofarlega á lista yfir þær mögnuðustu hingað til. Elsti kettlingurinn í gotinu dó og það var mikil gleði þegar systkinin þrjú komust heil á húfi í heiminn. Ég fylgdist með þeim vaxa og styrkjast, sá persónuleikana koma í ljós á ólíka vegu og kynntist þeim öllum náið. Þegar þau voru orðin nægilega sjálfstæð voru þau gefin og allir kettlingarnir enduðu innan ættarinnar. Lubba litla var algjör bolla, kafloðin og silkimjúk, ættuð af persakyni í aðra ættina en óvíst var um faðernið. Ég held ég hafi séð pabba hennar einu sinni á göngu í götunni heima. Hann starði heillengi á mig eins og hann vissi að ég hefði tekið á móti börnunum hans. Sá köttur er loðinn líka, með íkornaskott eins og afkvæmin þrjú. Mamman er af dvergakyni en pabbinn ekki. Börnin sem eftir lifa stefna í að verða stærri og loðnari en mamma þeirra.

No comments:
Post a Comment