Um síðustu helgi sat ég í Skjaldborgarbíói á opnunarkvöldi hátíðar íslenskra heimildamynda á Patreksfirði og hlustaði á einn þekktasta og virtasta leikstjóra bransans ræða sinn feril og sínar myndir og svara spurningum á sviðinu. Albert Maysles heitir hann, sérlegur heiðursgestur hátíðarinnar, en sýnd voru valin verk frá rúmlega hálfrar aldar ferli, þ. á m. víðfræg mynd sem hann gerði um Rolling Stones og Altamont árið 1970. Albert hafði frá ýmsu að segja, eins og við er að búast af manni sem hefur unnið með ótal viðfangsefnum í sínum myndum, m.a. Bítlunum, Marlon Brando, Truman Capote og Orson Welles, svo eitthvað sé nefnt.
Dagskrá Skjaldborgarhátíðarinnar í ár samanstóð af um 30 íslenskum heimildamyndum og stór hluti þeirra leikstjóra voru viðstaddir yfir helgina. Ég get því gróflega ályktað að fjölmargir heimildamyndagerðarmenn, nýgræðingar jafnt sem lengra komnir, hafi setið og hlustað á Maysles ræða málin. Þeim hlýtur því öllum að hafa brugðið þegar hann lýsti því yfir að hann væri í stökustu vandræðum að koma draumamyndinni sinni í verk vegna þess að hann skorti fjármagn. Það var ákveðið raunveruleikasjokk að heyra rúmlega áttræðan manninn, sem er jafnframt einn frægasti leikstjóri á sínu sviði, játa þetta. Eftir allt sem hann hefur gert, þá þarf hann ennþá að ströggla til að gera myndir. Og ef Albert Maysles þarf enn að berjast fyrir sinni list, þá þýðir lítið fyrir okkur hin að kvarta. Þá veltir maður kannski fyrir sér hvort hann sé ekki lengur að gera nægilega spennandi myndir og lifi á fornri frægð, en svo er vissulega ekki.
Myndin sem hann dreymir um að klára og hefur verið að reyna að koma í vinnslu í meira en áratug fjallar um lestarferðir. Maysles vill fara í lestir víða um heim og grípa mannlegar sögur frá farþegum til að sýna hversu nátengd við erum hvoru öðru, landamæralaust. Þetta gæti hljómað eins og skrítið umfjöllunarefni, en sá dularfulli kraftur fylgir Maysles að hann þefar uppi mannlegt drama hvert sem hann fer. Þegar hann gerði prufu fyrir myndina fór hann í lest í Bandaríkjunum og sá konu sem virtist vera eitthvað stressuð. Hann kynnti sig, spurði út í ferðalagið og bað um að fá að fylgja henni eftir með vélina. Í ljós kom að konan var á leið að hitta móður sína í fyrsta sinn, en hún hafið verið tekin frá henni sem ungbarn. Albert fylgdi alla leið á stöðina og náði endurfundunum á filmu. Í öðru tilviki var hann að ferðast í Rússlandi og bankaði upp á í lestarvagni þar sem honum virtist fjölskylda vera saman komin – móðir, faðir og tvö börn. Um leið og hann gekk þar inn rétti annað barnið honum ljósmynd. Svo kom í ljós að þetta voru ekki foreldrar þeirra, heldur frændfólk sem var að sækja börnin vegna þess að faðir þeirra var nýbúinn að myrða móður þeirra. Ljósmyndin var af börnunum við líkkistuna.
Þá er ekki annað hægt en að spyrja sig hvernig Albert fari að því að næla alltaf í svona áhugavert efni. Er hann bara heppinn, eða býr hann yfir sjötta skilningarviti heimildamyndagerðarsnillingsins? Þetta er vafalaust góð blanda af báðu. Það fer a.m.k. ekki framhjá neinum sem sér myndirnar hans að Albert kann að lesa mannfólk. Ég gæti ekki hugsað mér betri mann til að halda af stað í lestarferð um heiminn og finna allt það áhugaverða fólk sem leynist í hverjum króki og kima. Þá er bara að vona að einhver sjái sér fært að veita honum fjármagn til að klára þau verk sem hann vill gera, því við ættum að fagna því að hann sé ennþá á fullu að vinna myndir og hlakka til þess sem koma skal, því hann á greinilega nóg eftir.

No comments:
Post a Comment