Verandi safn greina, sagna og hugleiðinga sem ælt hefur verið út um hvippinn og hvappinn.

Saturday, February 2, 2008

Töfrar kvikmyndanna

Því er gjarnan haldið fram að kvikmyndaformið sé náskylt draumum. Passívur áhorfandi sem situr kyrr í myrkum sal er mataður með myndaröð af óséðum aðila sem vinnur á bak við tjöldin. Það sama má segja um sofandi mann sem er mataður með dularfullu myndefni af undirmeðvitundinni. Kvikmyndatæknin getur haft djúpstæð áhrif bæði á meðvitund og upplifun áhorfanda. Bestu dæmin eru líklega faldar auglýsingar í kvikmyndum, vel heppnaðar áróðursmyndir og verk ýmissa súrrealista (að ótöldum kenningum um heilaþvott og hugsanastýringu). Hugmyndir um að hægt sé að framleiða kvikmynd sem geti tryllt áhorfendur og bókstaflega haft áhrif á hegðun þeirra er vissulega heillandi. John Carpenter hefur t.a.m. leikið sér með þessar pælingar í tveimur verkum. Í In The Mouth of Madness (1995) rústa bækur vinsæls hryllingshöfundar geðheilsu lesenda og þegar kvikmyndaaðlögunin kemur loksins út missir fólk vitið í milljónatali (enda á myndaformið greiðari leið að huga almennings). Í stuttmyndinni Cigarette Burns (2005) fer maður í leit að kvikmynd eftir bandbrjálaðan sérvitring sem er fræg fyrir að hafa gert áhorfendur snaróða í eina skiptið sem hún var sýnd almenningi. Eftir stranga og erfiða leit kemst söguhetjan að því að leikstjóranum hafði tekist að redda sér lifandi engli, sem hann misþyrmdi og vængstýfði fyrir framan tökuvélarnar. Englablóð á filmu er víst nóg til að gera hvern sem er að morðóðum fanti.

Hugmyndir af þessu tagi eiga meira skylt við galdra heldur en kvikmyndagerð (sumir vilja þó meina að þetta tvennt sé náskylt, eins og kvikmyndir og draumar). Það er mikil hefð fyrir dulspeki í kvikmyndum og margir virkir galdramenn hafa unnið sem leikstjórar. Frægastur er líklega Kenneth Anger, sem var sjálfur lærisveinn frægasta galdramanns 20. aldar, Aleister Crowley. Anger framreiddi verk sem hann lýsti sjálfur sem galdravopnum til að hafa áhrif á umheiminn. Hann notaði blöndu af magískri táknfræði, dulspeki, fornum trúarathöfnum og vísunum í samtímapoppkúltur til að kalla fram álög á filmu í myndum á borð við Lucifer Rising (1972) og Inauguration of the Pleasure Dome (1954). Anger vildi leggja galdur á áhorfendann sem yrði endurvakinn með endurteknu áhorfi og gæti þannig lifað um ókomin ár. Myndmálið var til þess ætlað að hafa áhrif á ólík stig (undir)meðvitundar í áhorfandanum.

Þrátt fyrir að til séu kvikmyndagerðarmenn sem líti á sig sem hreinræktaða galdramenn og vinni meðvitað með formið sem slíkt þá birtist dulspeki-þátturinn oftar í formi tóls sem er notað til að draga fórnarlömbin inn í filmuna í gegnum táknfræði, ritúala og óhefðbundnar frásagnaraðferðir. Fjöldi leikstjóra hefur stuðst við dulspeki á einn eða annan hátt í gegnum áratugina. Alejandro Jodorowsky er þekktur kuklari (hann eyddi m.a. rúmum 15 árum í að rannsaka og endurvinna upprunalega Tarotið frá Marseille) og áhrifanna gætir greinilega í verkum hans (The Holy Mountain (1973) er líklega besta dæmið). Það sama má segja um fræga stuttmynd Mayu Deren, Meshes of the Afternoon (1943). Werner Herzog gerði róttækar tilraunir með dáleiðslu við gerð myndarinnar Heart of Glass (1976). Og David Lynch, eins og frægt er orðið, styðst við hugleiðslu í listsköpun sinni til að hafa áhrif á og eiga í samskiptum við áhorfendur á djúpstæðu plani undirmeðvitundar – maður verður að kafa djúpt til að finna stóra fiska, eins og Lynch orðar það sjálfur. Það fer ekki á milli mála að magían hefur fyrir löngu hreiðrað um sig í heimi kvikmyndanna og myndar þar kafla sem enn á eftir að rannsaka til hlítar.

No comments: