Verandi safn greina, sagna og hugleiðinga sem ælt hefur verið út um hvippinn og hvappinn.

Saturday, February 23, 2008

Vampíra látin!

Þessi fyrirsögn kemur kannski mánuði of seint, en betra er seint en aldrei, sérstaklega ef um ræðir lifandi dauðar goðsagnir á borð við Mailu Nurmi (1921-2008). Það kemur kannski ekki á óvart að Nurmi hafi ekki fengið mikið pláss í fjölmiðlum eftir 10. janúar síðastliðinn, enda var hún ekki ungt nýstirni sem dó fyrir aldur fram, heldur gömul glóandi stjarna sem lést af náttúrulegum orsökum 86 ára að aldri. Blöðin fengu líka nóg að gera þegar Brad Renfro dó nokkrum dögum síðar og Heath Ledger viku eftir það. En það er ekki á hverjum degi sem vampírur deyja og ég vil nýta tækifærið til að minnast hinnar einu sönnu Vampiru (borið fram Vam-pæ-ra) með fáeinum orðum.

Flestir þekkja týpuna án þess að kannast við hana sjálfa. Nurmi gerðist fyrsti „hryllingskynnirinn“ (e. horror host) í bandarísku sjónvarpi þegar hún skapaði persónuna Vampiru og fékk vinnu við að kynna b-mynda ruslið á síðkvöldum hjá lítilli sjónvarpsstöð í Los Angeles árið 1954. Þátturinn hét einfaldlega The Vampira Show og var tilraun dagskrárstjóra til að lokka áhorfendur að skjánum að fylgjast með efni sem var ekki beinlínis efst á vinsældalistum. Persóna Vampiru var svartklædd, kynþokkafull og glæsileg, eins og klippt út úr gotneskum hryllingsbókmenntum, en jafnframt full af húmor fyrir sjálfri sér og þeim myndum sem hún var að kynna. Hún sagði sjálfsmeðvitaða brandara og hélt uppi gleðilega hallærislegu gríni ásamt aðstoðarköngulónni sinni, Rollo. Sviðsmyndin var gamall sófi skreyttur hauskúpum og beinum og titillag þáttarins var tekið úr verki Béla Bartók, Tónlist fyrir strengi, slagverk og celestu. Nurmi byggði persónuna á gömlum drottningum þöglu myndanna á borð við Thedu Böru og Gloriu Swanson, auk vondu stjúpunnar í Mjallhvíti Walt Disney og frægra teiknimynda Charles Addams úr New Yorker.

Vampira var prótótýpa goth-menningar nútímans. Hún var sannkölluð hryllingsdrottning sem sameinaði kynlíf, dauða og glens í einum og sama karakternum, og því er ekki að undra að hún hafi slegið rækilega í gegn á sínum tíma. Eftir að fréttir af sjónvarpskynninum tóku að berast ríkjanna á milli varð Vampira fræg á landsvísu og öll helstu kvikmyndaverin sýndu áhuga á að vinna með henni. Aðdáendaklúbbar spruttu upp eins og gorkúlur og fyrr en varði voru hryllingskynnar á hverju strái. Það er því mesta furða að Nurmi hafi ekki nýtt sér tækifærin sem virtust bókstaflega fleygja sér að fótum hennar. Hún lék í örfáum kvikmyndum á næstu árum og allt voru það lélegar b-myndir í anda The Vampira Show. Þar ber helst að nefna hlutverk á móti Bela Lugosi í stórvirki Ed Wood, Plan 9 From Outer Space (1959). Því miður verður Vampiru ávallt minnst vegna þeirrar myndar, því þar má finna einu samtímaupptökurnar af Nurmi í gervinu, þar sem hún leikur hlutverkið þögult og fimmaurabrandararnir eru fjarri góðu gamni. Engar upptökur eru til úr The Vampira Show, en hlutverkið var síðar meir gætt lífi og rödd af Lisu Marie í ævisögulegri mynd Tim Burton um Ed Wood.

Eftir þetta missti umheimurinn áhugann á Vampiru. Nurmi hvarf úr sviðsljósinu næstu áratugi en stakk fram höfðinu endrum og nær til að birtast í einstaka b-mynd eða heimildamynd. Á níunda áratugnum lögsótti hún hina barmmiklu vampíru Elviru (borið fram El-væ-ra) og vildi skaðabætur, þar sem hún taldi leikkonuna Cassöndru Peterson hafa stolið persónu sinni. Nurmi tapaði málinu og hvarf aftur í skuggana, en Vampira lifir enn góðu lífi hjá áhugafólki b-mynda og mun ávallt eiga sinn sess í hryllingsgoðsögunum.

No comments: