Verandi safn greina, sagna og hugleiðinga sem ælt hefur verið út um hvippinn og hvappinn.

Saturday, March 29, 2008

S fyrir skyggnubíó

Árið 1961 frumsýndi BBC sjö þátta sjónvarpsseríu. Sögusviðið var náin framtíð og efnið vísindafantasía af bestu gerð. Þáttaröðin fékk gæðastimpil strax í upphafi vegna þátttöku stjörnu- og heimsfræðingsins Fred Hoyle, sem skrifaði handritið og bætti þar með auknu raunsæi við mixtúruna. Verkið hét A for Andromeda og er nú á dögum talin einn hornsteina vísindaskáldskaps í sjónvarpi á sjöunda áratugnum og ein af merkilegri þáttaröðum sem BBC hefur varpað. Það er því ótrúlegt að aðeins einn þáttur af sjö hefur varðveist – og enn ótrúlegra að þrátt fyrir það hefur öll serían verið gefin út á DVD.

Söguþráðurinn lokkaði mig til sín um leið, enda hef ég veikan blett fyrir gömlu sæ-fæ. A for Andromeda hefst árið 1970 og segir frá hópi vísindamanna sem taka við skilaboðum frá geimnum. Þau innihalda leiðbeiningar til að byggja og forrita tölvu. Fyrr en varir er vélin farin að hugsa sjálfstætt og tekin að sýna umhverfi sínu mikinn áhuga. Hún kennir hópnum að skapa frumstæða lífveru og þegar enginn sér til myrðir hún vísindakonu að nafni Christine (Julie Christie í fyrsta stórhlutverki sínu). Því næst gefur tölvan leiðbeiningar að því hvernig á að skapa mennskt fóstur og á mettíma vex fullkomin eftirmynd Christine úr grasi. Þessi dularfulla geimkona er skírð Andromeda og enginn veit hvert ætlunarverk hennar er á Jörðinni.

Ég byrjaði að horfa á þættina fyrr í vikunni og dáleiddist strax – ekki endilega vegna þess hversu spennandi sagan reyndist, heldur vegna formsins sem serían hefur varðveist í. Á ýmsa vegu minnir það frekar á nútímavídeólist eða gamlar avant-garde kvikmyndir á borð við La Jetée (1962), þar sem stillimyndir eru settar saman, líkt og skyggnusýning, ásamt hljóðrás, til að skapa myndaflæði án hreyfingar. A for Andromeda hefur nefnilega varðveist að mestu í stillum. Hljóðrásin er ekki einu sinni til lengur, nema í brotum. Meirihluti seríunnar er því skyggnusýning með undirtexta sem lýsir því sem á sér stað hverju sinni og abstrakt geimtónlist sem spilast yfir. Það tók nokkurn tíma að venjast þessu, en á einhvern dularfullan hátt dró þetta mig enn sterkar inn í atburðarásina – kannski vegna þess að stillurnar minna á ljósmyndir og serían líkist þannig frekar sagnfræðilegri heimild um liðinn atburð en sjónvarpsfantasíu. Hver rammi helst lengi á skjánum, honum er troðið upp á mann og ekki annað hægt en að sökkva ofan í senuna. Af og til er síðan formið brotið upp með þeim örfáu myndskeiðum sem hafa varðveist.

Á fyrstu áratugum sjónvarpsútsendinga í Bretlandi var þáttaröðum að miklu leyti hent í ruslið – efninu var eytt út af spólunum til endurvinnslu og sparnaðar án nokkurs skilnings á framtíðarvarðveislu eða menningargildi. Fjöldi sjónvarpsþátta hlaut þessi örlög (yfir hundrað Dr. Who þættir!) en sem betur fer var til maður sem hét John Cura sem tók sérstakar myndir af útsendingunum – svokallaðar „tele-snaps“ – og seldi til minja um verkin, aðallega fyrir aðstandendur sem vildu eiga sýnishorn af vinnu sinni (fyrir tíma myndbandstækninnar). Á síðari árum hafa ýmsir aðdáendur staðið fyrir því að gömlu efni hefur verið púslað aftur saman úr þessum tele-snaps myndum, ásamt hljóðrás og/eða texta, til að endurskapa týnda fjársjóði og gefa nýjum áhorfendahópi tækifæri til að upplifa þá. Á bloggsíðum má finna fýluköst margra þeirra sem munu aldrei fyrirgefa BBC fyrir ódæðisverkin, en því verður ekki neitað að án þess að ætla sér það tókst nískupúkum BBC og ljósmyndaranum Cura að skapa afar sérstakt kvikmyndaform sem verður seint leikið eftir.

No comments: